Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja

Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Kerfið einfaldar umsýsluna sem fylgir fyrirtækjarekstri með því að tengja reikninga, kort og greiðslur við kvittanir, sölureikninga og bókhaldskerfi.
Hugbúnaðarhúsið Reon hefur þróað Brutto í samstarfi við Landsbankann. Með Markaðstorgi Landsbankans og aðgangi að vefþjónustum bankans getur Reon gert bankaþjónustuna aðgengilega beint í Brutto án þess að þróa alla innviðina frá grunni. Þetta er hluti af opnu bankakerfi Landsbankans sem gerir fyrirtækjum kleift að byggja nýjar lausnir á þjónustu bankans.
Í Brutto er hægt að sækja um bankareikning og greiðslukort hjá Landsbankanum og tengja reikninga frá öðrum bönkum. Einnig er hægt að útbúa staðlaða samninga, bæta við eigin samningum og undirrita þá rafrænt með Taktikal.
„Landsbankinn hefur frá stofnun stutt við íslenskt atvinnulíf og við leitum stöðugt nýrra leiða til að auðvelda fyrirtækjum að vaxa og dafna. Með samstarfinu við Reon tengjum við bankaþjónustuna við Brutto og færum hana nær daglegum rekstri fyrirtækja. Fyrirtækjaeigendur hafa í mörg horn að líta og góðar lausnir eins og Brutto geta létt undir og gefið þeim meiri tíma til að sinna rekstrinum,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Fyrstu skrefin á einum stað
Á næstunni verður einnig hægt að stofna fyrirtæki í Brutto. Nýir rekstraraðilar geta þá gengið frá stofnun, sótt um reikning og kort hjá Landsbankanum og hafið reksturinn, allt á einum stað. Jafnframt er unnið að lausn sem einfaldar utanumhald og endurgreiðslu á útlögðum kostnaði starfsfólks.
„Fæstir stofna fyrirtæki til að sitja á sunnudagskvöldum yfir kvittunum og Excel-skjölum. Fólk vill sinna því sem það kann best og hefur ástríðu fyrir. Brutto einfaldar tímafreka umsýslu fyrirtækjaeigenda svo meiri tími gefist til að byggja upp fyrirtækið. Með vefþjónustum Landsbankans getum við tengt bankaþjónustuna beint við Brutto og lagt kraftinn í áframhaldandi þróun kerfisins,“ segir Elvar Örn Þormar, eigandi Reon.
Mynd: Efri röð frá vinstri: Sigurður R. Arnbjörsson, Lilja Björk Einarsdóttir, Díana Dögg Víglundsdóttir, Þorsteinn Stefánsson, Sandra Matthíasdóttir. Neðri röð frá vinstri: Elvar Örn Þormar, Viktor Hugi Júlíusson, Vladimir Kuvshinov, Andri Rafn Ágústsson.









