Sumarleikur
Fjármálin í sumar
Við tókum saman nokkur lykilatriði sem gott er að fara yfir áður en þú byrjar að vinna í sumar.

Öll sem eru 13-24 ára* (sem verða 24 ára á árinu) geta safnað tvöföldum Aukakrónum í sumar frá 1. júní - 31. ágúst, þó að hámarki 10.000 Aukakrónur. Veldu rétta kortið fyrir þig og byrjaðu að safna.

Þegar þú greiðir í séreignarsparnað færð þú í raun launahækkun þar sem launagreiðandi greiðir 2% til viðbótar.
Taktu þátt í sumarleiknum!
Fimm heppnir viðskiptavinir á aldrinum 16-24 ára sem eru með viðbótarlífeyrissparnað vinna 100.000 Aukakrónur. Við drögum í lok sumars!

Fjölbreytt sértilboð hjá samstarfsaðilum sem eru viðbót við almenna Aukakrónusöfnun.

Til að finna rétta kortið er gott að skoða muninn á fríðindasöfnun, ferðatryggingum og árgjöldum.

Með því að Spara í appi færðu betri vexti og getur sett þér sparnaðarmarkmið!
Varstu að byrja í nýrri vinnu?
Þegar þú byrjar í nýrri vinnu þá færist viðbótarlífeyrissparnaðurinn ekki sjálfkrafa á milli. Þess vegna þarft þú að skrá inn nýjan launagreiðanda til að greiða áfram í viðbótarlífeyrissparnað.

Svona breytir þú launagreiðanda
Þú lætur okkur vita af nýjum launagreiðanda í appinu undir „Lífeyrir“. Þar velur þú „Breyta“ við viðbótarlífeyrissparnað eða smellir á plúsinn neðst á síðunni. Þar getur þú líka breytt ávöxtunarleið og þínu framlagi í viðbótarlífeyrissparnað.

Sparnaður er góð leið til þess að láta drauma sína rætast. Það er gaman að sjá fjárhæðina hækka og því fylgir öryggistilfinning að eiga fyrir óvæntum útgjöldum.

Á 18. afmælisdeginum þínum verður þú sjálfráða og á sama tíma fjárráða, sem þýðir að þú hefur full yfirráð yfir peningunum þínum sem áður voru á ábyrgð foreldra eða forráðamanna.

Allar upplýsingar um þig eða sem tengjast þér eru persónuupplýsingar, t.d. nafnið þitt, kennitalan, heimilisfang og símanúmer og jafnvel ljósmyndir af þér eða myndbönd.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
