Viku­byrj­un 8. ág­úst 2022

Eftir nokkuð skarpar lækkanir á hlutabréfamörkuðum undanfarið hækkaði verð 19 hlutabréfa hjá þeim 22 félögum sem skráð eru í kauphöllina í júlí.
Þjóðvegur
8. ágúst 2022 - Hagfræðideild

Vikan framundan

  • Í dag birtir Seðlabankinn útreikning á raungengi í júlí og flugfélögin tvö, Icelandair og Play, birta flutningstölur fyrir júlí.
  • Á þriðjudag birta Lánamál ríkisins markaðsupplýsingar fyrir júlímánuð og Skeljungur birtir einnig ársfjórðungsuppgjör.
  • Á miðvikudag gefur Ferðamálastofa út talningu ferðmanna um Leifsstöð í júlí og Vinnumálastofnun birtir tölur um skráð atvinnuleysi.

Mynd vikunnar

Af þeim 22 félögum sem skráð eru á aðallista kauphallarinnar voru 19 sem hækkuðu í verði í júlí en einungis 3 sem lækkuðu. Mesta hækkunin var hjá Icelandair Group sem hækkaði um ríflega þriðjung í mánuðinum. Næstmesta hækkunin var hjá Eimskip sem hækkaði um rúmlega 20%. Þriðja mesta hækkunin var síðan hjá Origo, 16,4%. Þrátt fyrir þessa kröftugu hækkun nú í júlí er OMXI10 vísitalan enn tæplega 16% lægri en hún var í lok síðasta árs.

Efnahagsmál

Fjármálamarkaðir

  • Sýn boðaði til hluthafafundar seinna í mánuðinum vegna breytinga sem hafa orðið á hluthafahópi félagsins.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 8. ágúst 2022 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
6. sept. 2024
Mánaðaryfirlit yfir sértryggð skuldabréf - ágúst 2024
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit sértryggðra skuldabréfa.
Lyftari í vöruhúsi
5. sept. 2024
Halli á viðskiptum við útlönd á 2. ársfjórðungi
Halli mældist á viðskiptum við útlönd á öðrum fjórðungi þessa árs, ólíkt öðrum ársfjórðungi í fyrra, þegar lítils háttar afgangur mældist. Það var afgangur af þjónustujöfnuði og frumþáttatekjum, en halli á vöruskiptum og rekstrarframlögum. Hrein staða þjóðarbúsins versnaði lítillega á fjórðungnum.
3. sept. 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 3. september 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Íslenskir peningaseðlar
2. sept. 2024
Vikubyrjun 2. september 2024
Verðbólga lækkaði óvænt á milli mánaða í ágúst. Hagkerfið dróst örlítið saman á milli ára á öðrum ársfjórðungi, en á sama tíma er nú ljóst að hagvöxtur í fyrra var meiri en áður var talið og einnig að samdráttur var minni á fyrsta ársfjórðungi. Í þessari viku birtir Seðlabankinn gögn um greiðslujöfnuð við útlönd og fundargerð peningastefnunefndar.
Bílar
30. ágúst 2024
Samdráttur annan ársfjórðunginn í röð
Hagkerfið dróst örlítið saman á milli ára á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Á sama tíma er nú ljóst að hagvöxtur var meiri í fyrra en áður var talið og samdráttur einnig minni á fyrsta ársfjórðungi. Umsvif í hagkerfinu eru því meiri en áður var talið þótt landsframleiðsla dragist saman.
Paprika
29. ágúst 2024
Verðbólga undir væntingum - lækkar í 6,0%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í ágúst, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Ísland. Ársverðbólga lækkar því úr 6,3% í 6,0%, um 0,3 prósentustig. Vísitalan hækkaði nokkuð minna en við gerðum ráð fyrir, en við spáðum óbreyttri verðbólgu. Það sem kom okkur mest á óvart var lækkun á menntunarliðnum, sem skýrist af niðurfellingu á skólagjöldum einstaka háskóla. Verð á matarkörfunni lækkaði í fyrsta skiptið í þrjú ár. 
Flutningaskip
27. ágúst 2024
Halli á vöru- og þjónustuviðskiptum þrjá ársfjórðunga í röð
Afgangur af þjónustuviðskiptum náði ekki að vega upp halla af vöruviðskiptum á öðrum ársfjórðungi, ólíkt því sem var fyrir ári síðan. Bæði var meiri halli af vöruviðskiptum og minni afgangur af þjónustuviðskiptum en á öðrum fjórðungi síðasta árs.
Hús í Reykjavík
26. ágúst 2024
Vikubyrjun 26. ágúst 2024
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í síðustu viku, eins og búist var við. Nokkur kraftur er í fasteignamarkaðnum og vísitala íbúðaverðs og vísitala leiguverðs hækkuðu báðar þó nokkuð í júlí. Í þessari viku fáum við verðbólgutölur fyrir ágústmánuð og þjóðhagsreikninga annars ársfjórðungs. 
Rafbíll í hleðslu
20. ágúst 2024
Ný aðferð hefur skilað lægri verðbólgumælingum
Hagstofan hefur frá því í júní notað nýja aðferð við að mæla kostnað við búsetu í eigin húsnæði. Hefði Hagstofan ekki breytt um aðferð væri verðbólgumælingin nú líklega hærri. Um næstu áramót áforma stjórnvöld að breyta innheimtu gjalda á ökutæki sem mun að líkindum einnig hafa áhrif til lækkunar á mældri verðbólgu.
19. ágúst 2024
Neysla heimila meiri en áður var talið 
Uppfærð gögn Seðlabankans gefa til kynna að kortavelta íslenskra heimila hafi verið þó nokkuð meiri á þessu ári en áður var talið. Heildarkortavelta Íslendinga hefur aukist á milli ára alla mánuði ársins og hefur verið 4% meiri að raunvirði það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur