5. janúar 2026
Vikan framundan
- Á miðvikudag birtir Eurostat verðbólgutölur fyrir evrusvæðið.
- Á föstudag birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi hér á landi í desember. Atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum verða birtar sama dag.
Mynd vikunnar
Þótt ársverðbólga hafi lítið breyst á síðasta ári tók samsetning hennar þó nokkrum breytingum. Augljósasta breytingin er fólgin í því að húsnæðiskostnaður hefur nú mun minna vægi í verðbólgunni en í byrjun síðasta árs. Á sama tíma hefur vægi innlendra vara og þjónustu aukist. Vægi innfluttra vara hefur aftur á móti minnkað örlítið.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Verðbólgan í desember jókst úr 3,7% í 4,5%. Rífleg hækkun á flugfargjöldum til útlanda á stóran þátt í aukinni verðbólgu, en einnig gjaldskrárhækkun á hitaveitu.+
- Lánamál ríkisins birtu ársáætlun fyrir 2026 og ársfjórðungsáætlun fyrir 1F 2026. Fjármála- og efnahagsráðuneytið gaf út stefnu í lánamálum ríkisins fyrir árin 2026-2030.
- Arion og Kvika tilkynntu um fyrirhuguð endurkaup á hlutabréfum.
- Alvotech tryggði sér lánsfjármögnun í bandaríkjadölum.
- Sýn og Nova luku sölu á 4G og 5G dreifikerfi félaganna til Sendafélagsins ehf..
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

20. apríl 2026
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.

20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.

17. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.

16. apríl 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.

13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.

1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.

26. mars 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.

23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.

16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
