4. desember 2017
Vikan framundan
- Eftir lokun markaða í dag birtir Seðlabankinn greiðslujöfnuð við útlönd á 3. ársfjórðungi og erlenda stöðu þjóðarbúsins m.v. lok fjórðungsins.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn útreikning á raungengi í nóvember.
- Á föstudag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir 3. ársfjórðung.
Mynd vikunnar
Útflutningur ferðaþjónustu nam samtals 190 mö.kr. á þriðja fjórðungi ársins og jókst um 3,2% milli ára. Á föstu gengi nam aukningin milli ára um 12%. Nokkuð hefur dregið úr hversu hratt gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu eru að vaxa, en það þarf að fara aftur til fyrsta ársfjórðungs 2015 til að sjá minni aukningu milli ára á föstu gengi.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/OGQ0ODY3ODItYjIxMS00NDdlLWE3MWUtMzNlNjRkZDFlMzcw_2017-12-04-utflutningur-ferdathjonustu-600.png?auto=compress,format&rect=0,0,600,349&w=600&h=349)
Það helsta frá vikunni sem leið
- Þjónustujöfnuður á 3. ársfjórðungi var jákvæður um 118 ma.kr.
- Vöru- og þjónustujöfnuður var jákvæður um 70 ma.kr.
- Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,16% milli mánaða í nóvember.
- Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar studdu allir nefndarmenn tillögu seðlabankastjóra um óbreytta vexti á síðasta fundi nefndarinnar.
- Hagstofan birti aflaverðmæti í ágúst, uppfærðar tölur um vöruskiptajöfnuð fyrstu 10 mánuði ársins og gistinætur í október.
- HB Grandi birti árshlutauppgjör.
- Lánamál ríkisins birtu stefnu í lánamálum 2018-2020
- Lánasjóður sveitarfélaga hélt skuldabréfaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
![Evrópsk verslunargata](https://images.prismic.io/landsbankinn/e83ba1d5-c520-4007-8926-cb75f4fd86b8_iStock-1388039756-Holland-verslunargata.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
![Hús í Reykjavík](https://images.prismic.io/landsbankinn/5024e55f-16d3-43f9-b606-ab01dbe5921f_hus-reykjavik-1920.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
18. júlí 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
![Gönguleið](https://images.prismic.io/landsbankinn/33cdc5f2-10ba-4d29-a88e-3db117f83c02_Gullfoss-gonguleid.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
![Fataverslun](https://images.prismic.io/landsbankinn/1da63ef3-f754-4e33-85b0-ae3d774b3971_Fataverslun.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
10. júlí 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/a923b976-0b6c-45a6-b7b7-b7efbe46320a_Landsbankinn_Irma_Abstrakt_016.jpg?fit=max&w=3840&rect=397,396,745,559&q=50)
8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/028a0757-28f9-4183-b615-499104716808_Landsbankinn_Irma_Abstrakt_018.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,140,1168,876&q=50)
1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
![Litríkir bolir á fataslá](https://images.prismic.io/landsbankinn/0715ffd5-f0a2-446e-bbf1-561d88cd1730_Fataverslun-bolir-varasamt-kortagengi.jpg?fit=max&w=3840&rect=240,0,1440,1080&q=50)
1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
![Flugvél á flugvelli](https://images.prismic.io/landsbankinn/c68d10e5-e50c-4447-8778-bd06a35cab8f_Jet-Brussels-iStock-1161966623.jpg?fit=max&w=3840&rect=1119,770,2455,1841&q=50)
27. júní 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/2fffc01a-44b7-44ee-bdc1-b8bd2c29c1ea_5.jpg?fit=max&w=3840&rect=55,0,1708,1281&q=50)
25. júní 2024
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
![Bílar](https://images.prismic.io/landsbankinn/135415c5-fb94-4d8d-8130-b0c165cf7c82_LB_Brimborg_Festi_V4A9178_1920.jpg?fit=max&w=3840&rect=94,295,1305,979&q=50)
25. júní 2024
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.