23. október 2017
Vikan framundan
- Á þriðjudag birta Hagar og Össur árshlutauppgjör.
- Á miðvikudag birta Marel, N1, Nýherji, Síminn og VÍS árshlutauppgjör.
- Á fimmtudag birta Landsbankinn, Icelandair og TM árshlutauppgjör.
- Á föstudag birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs. Við spáum 0,2% hækkun milli mánaða.
Mynd vikunnar
Á árunum 2011 til 2016 lækkuðu skuldir einkageirans, þ.e. heimila og fyrirtækja. Sem hlutfall af landsframleiðslu lækkuðu þessar skuldir um næstum helming, úr 300% af VLF í 160% af VLF. Í ár varð breyting þar á. Samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands er einkageirinn aftur byrjaður að skuldsetja sig, í frekar litlum mæli þó.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Allir nefndarmenn peningastefnunefndar voru sammála um að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar.
- Seðlabankinn birti seinni fjármálastöðugleikaskýrslu ársins.
- Hagstofan birti fjármálareikninga fyrir 2016.
- Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,8% milli mánaða í september.
- Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,8% milli mánaða í september.
- Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október hækkaði um 0,5% milli mánaða.
- Landsbankinn birti uppfærða áætlun um fjármögnun á markaði fyrir 2017.
- Reykjavíkurborg, Íslandsbanki, Lánasjóður sveitarfélaga og Lánamál ríkisins héldu skuldabréfaútboð.
- Arion banki hélt víxlaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
3. des. 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. des. 2024
Í síðustu viku bárust upplýsingar um að verðbólga hefði lækkaði úr 5,1% niður í 4,5% í nóvember og að landsframleiðslan hefði dregist saman um 0,5% að raunvirði á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Í vikunni birtir Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd, fundargerð peningastefnunefndar og yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
29. nóv. 2024
Hagkerfið dróst saman á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Verri afkoma þjónustuviðskipta við útlönd skýrir að stórum hluta samdráttinn á fjórðungnum. Innlend eftirspurn jókst um 0,8% milli ára og samneysla og aukin fjármunamyndun vógu þyngst til hækkunar.
29. nóv. 2024
Skammtímaleiga í gegnum Airbnb hefur stóraukist eftir faraldurinn og framboð á íbúðum til langtímaleigu virðist hafa minnkað á móti. Þessi þróun gæti hafa átt þátt í að þrýsta upp leiguverðinu. Stærstur hluti Airbnb-íbúðanna er leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu.
28. nóv. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 5,1% í 4,8%, eða um 0,3 prósentustig. Reiknuð húsaleiga hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar og flugfargjöld til útlanda mest áhrif til lækkunar.
26. nóv. 2024
Nýjustu gögn af íbúðamarkaði benda til þess að lítillega hafi dregið úr eftirspurn. Grindavíkuráhrifin eru líklega tekin að fjara út og hugsanlega heldur fólk að sér höndum nú þegar vaxtalækkunarferlið er nýhafið og loks glittir í ódýrari fjármögnun. Verðið gæti tekið hratt við sér þegar vextir lækka af meiri alvöru.
25. nóv. 2024
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku, í takt við væntingar. Í þessari viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu nóvembermánaðar en við eigum von á að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Á föstudag, þegar Hagstofan birtir þjóðhagsreikninga, kemur svo í ljós hvernig hagvöxtur þróaðist á þriðja ársfjórðungi.
19. nóv. 2024
Við spáum því að verðbólga lækki nokkuð hratt allra næstu mánuði og í nýlegri verðbólguspá gerum við ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar, sem er talsverð hjöðnun frá núverandi gildum. Það er því ágætt að staldra við og skoða hvaða þættir munu skýra lækkunina, gangi spá okkar eftir.
18. nóv. 2024
Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,50 prósentustig á miðvikudaginn. Verðmælingar vegna nóvembermælingar vísitölu neysluverðs fóru fram í síðustu viku, en við spáum því að verðbólga hjaðni úr 5,1% niður í 4,5%. Tæplega 5% fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í október í ár en í fyrra og kortavelta þeirra hér á landi jókst um 5,4% miðað við fast verðlag. Kortavelta Íslendinga jókst um 6,8% að raunvirði á milli ára í október.
14. nóv. 2024
Verðbólga hefur hjaðnað nokkuð kröftuglega á síðustu mánuðum og við spáum því að hún mælist 4,5% í nóvember. Loks má greina merki um hægari gang í neyslu heimilanna og íbúðaverð virðist vera á minna flugi en áður. Þá virðist eftirspurn eftir vinnuafli hafa minnkað auk þess sem hægt hefur á launahækkunum. Peningalegt aðhald hefur aukist statt og stöðugt og landsframleiðsla gæti orðið lítillega minni á þessu ári en því síðasta.