Vikubyrjun 15. september 2025
Ferðamönnum hélt áfram að fjölga af krafti í ágúst og Íslendingar slógu enn eitt metið í fjölda utanlandsferða. Atvinnuleysi hélst óbreytt á milli mánaða í 3,4% og er lítillega meira en á sama tíma í fyrra. Í þessari viku birtir HMS nýjustu gögn um íbúðamarkað og við fylgjumst með vaxtaákvörðunum í Bandaríkjunum og Bretlandi.

15. september 2025
Vikan framundan
- Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðaverðs í ágúst.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn gögn um greiðslumiðlun í ágúst og HMS birtir vísitölu leiguverðs. Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnir um vaxtaákvörðun og verðbólgutölur verða birtar í Bretlandi.
- Á fimmtudag birtir HMS mánaðarskýrslu hagdeildar og þann dag tilkynnir Englandsbanki um vaxtaákvörðun.
Mynd vikunnar
Það sem af er ári hafa Íslendingar farið í tæplega 21% fleiri utanlandsferðir en á sama tímabili í fyrra og ferðir á tímabilinu janúar-ágúst hafa aldrei verið nálægt því jafnmargar og í ár. Ferðir í ágústmánuði hafa heldur aldrei verið jafnmargar og í ágúst síðastliðnum þegar Íslendingar fóru um 59 þúsund sinnum út fyrir landsteinana. Því er ekki að undra að vaxandi hluti af kortaveltu landsmanna fari fram erlendis, en í júlí fór hlutfallið í fyrsta sinn yfir 25%.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Um 311 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst, 10,6% fleiri en í ágúst í fyrra. Áfram eru því merki um kröftugt sumar í ferðaþjónustu. Í júní og júlí fjölgaði ferðamönnum einnig töluvert: um 10,1% á milli ára í júní og um 9,1% á milli ára í júlí. Það sem af er ári hafa erlendir ferðamenn verið 3,1% fleiri en á sama tíma í fyrra.
- Skráð atvinnuleysi mældist 3,4% í ágúst, eins og í júlí. Skráð atvinnuleysi er 0,2 prósentustigum meira en á sama tíma í fyrra.
- Seðlabanki Evrópu ákvað að halda vöxtum bankans óbreyttum í 2%. Ákvörðunin var í samræmi við væntingar.
- Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,7% í 2,9% í ágúst. Verðbólgutölurnar voru í takt við væntingar.
- Reykjavíkurborg og Akureyrarbær birtu uppgjör.
- Landsbankinn lauk sölu á sértryggðum skuldabréfum. Alma íbúðafélag hélt víxlaútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.
Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.
Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.
Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á

1. des. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

1. des. 2025
Óhætt er að segja að verðbólgumælingin í síðustu viku hafi komið á óvart. Verðbólga mældist 3,7% í nóvember og hefur ekki mælst minni í fimm ár. Hagstofan áætlar að landsframleiðsla hafi aukist um 1,2% á þriðja ársfjórðungi. Gistinóttum fjölgaði alls um 1,8% á milli ára í október.

28. nóv. 2025
Landsframleiðsla jókst um 1,2% á þriðja ársfjórðungi og um 1,5% á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi var drifinn áfram af innlendri eftirspurn og þjóðarútgjöld jukust um heil 4,7%. Áfram er kraftur í einkaneyslu og fjárfestingu, en auknar birgðir hafa einnig sitt að segja. Innflutningur vegur þungt á móti og framlag utanríkisviðskipta er neikvætt, líkt og á síðustu fjórðungum.

27. nóv. 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,3% í 3,7% í nóvember og hefur ekki verið minni frá því í desember 2020. Áhrif af afsláttardögum í nóvember komu mun skýrar fram í mælingu Hagstofunnar nú en síðustu ár og flugfargjöld til útlanda lækkuðu mun meira en við bjuggumst við.

24. nóv. 2025
Seðlabankinn lækkaði vexti í síðustu viku með það fyrir augum að stemma stigu við því aukna peningalega aðhaldi sem hefur hlotist af breyttu lánaframboði í kjölfar vaxtadómsins. Auk þess spáir Seðlabankinn nú auknum slaka í hagkerfinu, minni hagvexti og minni verðbólgu en í síðustu spá. Hagstofan birtir verðbólgumælingu nóvembermánaðar á fimmtudaginn og þjóðhagsreikninga fyrir þriðja ársfjórðung á föstudaginn.

21. nóv. 2025
Brottfarir erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli voru 6,2% færri í október en í sama mánuði í fyrra og erlend kortavelta dróst þó nokkuð saman. Líklega hefur fall Play sett mark sitt á mánuðinn. Ef horft er yfir árið í heild hefur gangurinn í ferðaþjónustu verið mun meiri á þessu ári en því síðasta.

17. nóv. 2025
Skráð atvinnuleysi var 3,9% í október, 0,5 prósentustigum meira en í sama mánuði í fyrra. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 6,2% í október en utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 3%. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum.

14. nóv. 2025
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í október og verðbólgumælingin bar þess merki að undirliggjandi verðþrýstingur hefði aukist. Í ljósi breytts lánaframboðs og óviðbúinna áfalla í útflutningsgeirunum má líkast til búast við mildari tón frá peningastefnunefnd.

13. nóv. 2025
Við spáum því að verðbólga standi óbreytt á milli mánaða og mælist 4,3% í nóvember. Flugfargjöld til útlanda verða til lækkunar á vísitölunni, en reiknuð húsaleiga og matarkarfan verða til hækkunar. Við búumst við aukinni verðbólgu á næstu mánuðum.

10. nóv. 2025
Raungengi krónunnar er mjög hátt í sögulegu samhengi en hefur gefið lítillega eftir á allra síðustu dögum. Horfur í álútflutningi eru dræmar eftir bilun hjá Norðuráli og aflaheimildir gefa fyrirheit um samdrátt í útflutningi sjávarafurða. Ferðaþjónusta hefur vaxið umfram væntingar það sem af er ári og telja má horfur á vexti í nýjustu útflutningsstoðum Íslands. Velta samkvæmt VSK-skýrslum hefur þróast með svipuðum hætti í útflutningsgeiranum og í innlenda hagkerfinu, en ávöxtun hlutabréfa félaga í kauphöllinni með tekjur í erlendri mynt er mun lakari en fyrirtækja með tekjur í íslenskum krónum.