Viku­byrj­un 14. nóv­em­ber 2022

Heildarlaun hækkuðu að meðaltali um 7,6% milli 2. ársfjórðungs 2021 og 2. ársfjórðungs í ár. Eins og oft vill verða var þróunin nokkuð ólík eftir því hvort um almenna eða opinbera markaðinn er að ræða og eins eftir atvinnugreinum.
14. nóvember 2022

Vikan framundan

  • Í dag birta Reitir árshlutauppgjör.
  • Á þriðjudag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs í október og Seðlabankinn tölur um greiðslumiðlun fyrir október.
  • Á miðvikudag birtir Seðlabankinn niðurstöður úr könnun á væntingum markaðsaðila.
  • Á fimmtudag birta Brim og Iceland Seafood árshlutauppgjör.
  • Í vikunni fara síðan fram verðmælingar vegna nóvembermælingar vísitölu neysluverðs, en Hagstofan birtir hana þriðjudaginn 29. nóvember.

Mynd vikunnar

Vísitala heildarlauna hækkaði um 7,6% milli 2. ársfjórðungs 2021 og 2. ársfjórðungs í ár. Eins og oft vill verða var þróunin nokkuð ólík eftir því hvort um almenna eða opinbera markaðinn er að ræða og eins eftir atvinnugreinum. Þannig hækkuðu heildarlaun hjá opinberum starfsmönnum nokkuð meira en meðal starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Ef við skoðum mismunandi atvinnugreinar sést að hækkunin var mest í greinum tengdum ferðaþjónustu, þ.e. í gististaða- og veitingarekstri og í leigustarfsemi og annarri sérhæfðri þjónustu, sem nær meðal annars til þjónustu ferðaskrifstofa og bílaleigubíla. Minnsta hækkun var í upplýsingum og fjarskiptum og í fasteignaviðskiptum.

Helsta frá vikunni sem leið

  • Um 160 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í októbermánuði sem er fjórði mesti fjöldi sem mælst hefur í októbermánuði. Svo virðist sem ferðaþjónustan sé orðin jafn umsvifamikil og áður en heimsfaraldurinn skall á, en október var fjórði mánuðurinn í röð sem það munaði innan við 5% á fjölda erlendra ferðamanna og í sama mánuði 2019. Nokkur breyting hefur orðið á samsetningunni frá því fyrir heimsfaraldurinn, en núna koma hlutfallslega fleiri ferðamenn frá Norður-Ameríku og Bretlandseyjum, en færri frá Austur-Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Brottfarir Íslendinga voru 72 þúsund og hafa aldrei mælst fleiri í októbermánuði. Icelandair og Play birtu síðan flutningstölur fyrir október í síðustu viku.
  • Hagstofan birti bráðabirgðatölur um vöruviðskipti í október. Alls var hallinn á vöruviðskiptum við útlönd 53 milljarðar króna. Þetta er mesti halli sem mælst hefur í einum mánuði, en gögn Hagstofunnar ná aftur til ársins 2002. Uppsafnaður halli síðustu tólf mánaða er um 310 milljarðar króna. Það ber þó að hafa í huga að síðustu ár hefur verið halli af vöruviðskiptum og afgangur af þjónustujöfnuði þannig að þessar tölur þýða ekki endilega að það muni verða mikill halli á viðskiptum við útlönd í heild.
  • Skráð atvinnuleysi mældist 2,8% í október og var óbreytt milli mánaða. Sem fyrr var atvinnuleysi hæst á Suðurnesjum (4,8%) og á höfuðborgarsvæðinu (3,0%) og lægst á Norðurlandi vestra (0,8%). Fyrir landið í heild var lítill munur á atvinnuleysi karla (2,7%) og kvenna (2,8%), en mesta atvinnuleysið mældist hjá konum á Suðurnesjum (5,6%).
  • Hagstofan og Arion banki birtu hagspár í vikunni. Arion banki gerir ráð fyrir 6,0% hagvexti í ár og 1,6% á næsta ári, Hagstofan 6,2% í ár og 1,8% á næsta ári. Í nýjustu hagspá okkar spáðum við 6,5% hagvexti í ár og 2,1% á næsta ári.
  • Seðlabankinn birti útreikning á raungengi í október og veltutölur af gjaldeyrismarkaði og krónumarkaði.
  • Erlendis bar hæst verðbólgutölur í Bandaríkjunum, en verðbólga þar lækkaði úr 8,2% í 7,7% milli september og október og hefur ekki mælst lægri síðan í janúar. Mælingin var lægri en búist var við og hækkuðu markaðir vestanhafs mikið í kjölfarið.
  • Sveitarfélagið Árborg og Reitir fasteignafélag héldu skuldabréfaútboð í síðustu viku. Lánamál ríkisins birtu Markaðsupplýsingar.
  • Kvika banki birti árshlutauppgjör.

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 14. nóvember 2022 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Epli
24. júlí 2024
Verðbólga hækkar í 6,3%, meira en spár gerðu ráð fyrir
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,46% milli mánaða í júlí, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólgan hækkar því úr 5,8% í 6,3%, um 0,5 prósentustig. Það sem kom mest á óvart í tölunum var að sumarútsölurnar voru lakari en við bjuggumst við og verð á matarkörfunni hækkaði meira en við héldum. Við gerum nú ráð fyrir að ársverðbólgan verði 6,2% í ágúst, 6,1% í september og 5,6% í október. Spáin er um 0,2-0,3 prósentustigum hærri en síðasta verðbólguspá sem við birtum í verðkönnunarvikunni.
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur