Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Mán­aða­mót 1. ág­úst 2025

Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
1. ágúst 2025

Verðbólga þróaðist í takt við væntingar í júlí og mældist 4,0%. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu meira en við gerðum ráð fyrir, reiknuð húsaleiga hækkaði minna og sumarútsölur á fötum og skóm voru lakari. Við teljum horfur á að verðbólga haldist um og yfir 4% út þetta ár og spáum 4,0% verðbólgu í ágúst, 4,2% í september og 4,3% í október.

Seðlabankinn tilkynnir um vaxtaákvörðun þann 20. ágúst næstkomandi. Ef peningastefnunefnd telur verðbólguhorfur svipaðar og við má telja ólíklegt að vextir verði lækkaðir. Áfram virðist þó nokkur neyslukraftur í hagkerfinu en kortavelta landsmanna hélt áfram að aukast að raunvirði í síðasta mánuði, auk þess sem utanlandsferðum Íslendinga fjölgar stöðugt. Ferðirnar voru næstum sjö þúsund fleiri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Þá hefur gengi krónunnar styrkst talsvert upp á síðkastið og atvinnuleysi haldist hóflegt þó smám saman hafi slaknað á spennu á vinnumarkaði. Líklega telur peningastefnunefnd útlit fyrir að hægja þurfi meira á hagkerfinu en áður þótti líklegt til þess að ná verðbólgu niður í markmið.

Íbúðaverð hefur verið á rólegri siglingu undanfarið og árshækkun íbúðaverðs var 4,7% í júní. Árshækkunin er því ekki langt umfram verðbólgu um þessar mundir og raunverð aðeins lítillega hærra en á sama tíma í fyrra.

Bandaríkin og Evrópusambandið tilkynntu í lok júlí um meiri háttar viðskiptasamning. Bandaríkin takmarka innflutningstolla á flestar evrópskar vörur við 15% og Evrópa skuldbindur sig meðal annars til orku- og vopnakaupa af Bandaríkjunum og heitir því að stórauka evrópska fjárfestingu í Bandaríkjunum.

Lesa fréttabréfið í heild:

Mánaðamót 1. ágúst 2025 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
15. jan. 2026
Spáum 5,1% verðbólgu í janúar
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,30% á milli mánaða í janúar. Gangi spáin eftir mun verðbólga aukast úr 4,5% í 5,1%. Janúarútsölur hafa mest áhrif til lækkunar í mánuðinum en breytingar á gjaldtöku ökutækja hafa mest áhrif til hækkunar, samkvæmt spánni. Mikil óvissa er þó um hvernig Hagstofan tekur breytingarnar inn í verðmælingar.
Smiður
13. jan. 2026
Atvinnuleysi eykst en kortavelta líka
Atvinnuástandið hefur versnað smám saman og eftirspurn eftir vinnuafli er minni en áður. Atvinnuleysi hefur aukist hratt og mældist 4,4% í desember, en svo mikið hefur atvinnuleysi ekki mælst í rúmlega þrjú og hálft ár. Þessi þróun styður við markmið Seðlabankans um að draga úr þenslu í hagkerfinu og vinna bug á verðbólgu. Á sama tíma heldur neysla landsmanna áfram að aukast með hverjum mánuðinum, en heildarkortavelta hefur aukist um 6% á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs frá sama tímabili árið áður.
Bílar
12. jan. 2026
Breytt gjaldtaka af bílum gæti aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig
Breytingar á gjaldtöku hins opinbera af rekstri og kaupum ökutækja gætu aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig. Óvíst er hvort áhrifin komi fram að öllu leyti í janúar eða dreifist yfir næstu mánuði, en telja má að það velti ekki síst á eftirspurn eftir bílum í byrjun árs.
Rafbíll í hleðslu
12. jan. 2026
Vikubyrjun 12. janúar 2026
Skráð atvinnuleysi hélt áfram að aukast í desember og var 0,6 prósentustigum meira en á sama tíma árið áður. Álíka margir erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í fyrra og síðustu tvö ár á undan en utanlandsferðir Íslendinga voru 18% fleiri í fyrra en árið á undan. Þó nokkur óvissa ríkir um verðbólgumælingu janúarmánaðar, ekki síst í tengslum við breytta gjaldtöku á innflutningi og rekstri bíla. Við gefum út verðbólguspá næsta fimmtudag.
5. jan. 2026
Mánaðamót 5. janúar 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vöruhótel
5. jan. 2026
Vikubyrjun 5. janúar 2026
Verðbólgan kom aftan að landsmönnum stuttu fyrir jól og fór úr 3,7% í 4,5%. Verðbólga í desember var aðeins 0,3 prósentustigum minni en í upphafi síðasta árs þegar hún mældist 4,8%. Á sama tímabili lækkuðu stýrivextir um 1,25 prósentustig, úr 8,50% í 7,25%.
Bananar
22. des. 2025
Verðbólgumælingin ekki jafnslæm og hún virðist í fyrstu
Verðbólga rauk upp í 4,5% í desember eftir að hafa hjaðnað verulega í nóvember og mælst 3,7%. Rífleg hækkun á flugfargjöldum til útlanda skýrir stóran hluta hækkunarinnar, en einnig töluverð gjaldskrárhækkun á hitaveitu í desember. Aukin verðbólga skýrist þannig af afmörkuðum, sveiflukenndum liðum og ekki er að greina merki um að undirliggjandi verðbólguþrýstingur hafi aukist að ráði.
Vélsmiðja Guðmundar
22. des. 2025
Vikubyrjun 22. desember 2025
Fasteignamarkaðurinn fer enn kólnandi, ef marka má skýrslu sem HMS gaf út í síðustu viku. Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6,6% á milli ára í nóvember. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 1,9% á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt Hagstofunni. Í dag birtir Hagstofan verðbólgutölur.
Flugvél
15. des. 2025
Vikubyrjun 15. desember 2025
Færri erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í nóvember í ár en í nóvember í fyrra en utanlandsferðum Íslendinga hélt áfram að fjölga. Skráð atvinnuleysi hefur aukist þó nokkuð á síðustu mánuðum og var 4,3% í nóvember.
11. des. 2025
Spáum 3,9% verðbólgu í desember
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,56% á milli mánaða í desember. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 3,7% í 3,9% í desember. Flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og lok tilboðsdaga í nóvember verða til hækkunar en bensínverð til lækkunar. Við gerum ráð fyrir að verðbólga verði á bilinu 3,9% til 4,0% næstu mánuði.