Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Laun hækk­uðu um 9,8% í fyrra

Launavísitalan hækkaði um 9,8% milli áranna 2022 og 2023 en kaupmáttur launa jókst aðeins um 1%. Sífellt færri stjórnendur fyrirtækja telja að það vanti starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði. Á síðustu árum hafa laun hækkað langmest meðal sölu- og afgreiðslufólks og verkafólks og minnst meðal stjórnenda og sérfræðinga.
Fataverslun
29. janúar 2024

Launavísitalan var að meðaltali 9,8% hærri árið 2023 en árið 2022. Svo mikið hefur launavísitalan ekki hækkað milli ára frá árinu 2016 þegar hún hækkaði um rúm 11%. Launahækkanir á fyrri hluta síðasta árs má rekja til kjarasamninga sem gerðir voru í byrjun ársins og undir lok ársins áður. Viðræðurnar teygðu sig fram yfir mitt ár og því komu launahækkanirnar smám saman inn í vísitöluna. Á seinni hluta ársins varð launaskrið í hverjum mánuði á bilinu 0,2% til 0,9%.

Launaþróun segir þó aðeins hálfa söguna og til þess að átta sig á þróun lífskjara er hjálplegra að horfa á kaupmátt launa, þ.e. hversu mikið af vörum og þjónustu hægt er að kaupa fyrir launin. Árið 2016 hækkuðu laun um 11,4% og kaupmáttur þeirra jókst um 9,5%, enda var verðbólga þá óvenjulítil. Á síðasta ári hækkaði verðlag um 8,7% á meðan laun hækkuðu um 9,8% og kaupmáttur jókst því aðeins um rúmt eitt prósent.

Vísitala kaupmáttar hefur því haldist nokkuð stöðug síðustu árin þótt launavísitalan hafi hækkað hratt. Launin hafa þannig lítið annað gert en að halda í við verðlagið, en á sama tíma átt þátt í að viðhalda því.

Kjaraviðræður í þrálátri verðbólgu

Þrálát verðbólga eykur hættuna á að víxlverkun hækkandi launa og verðlags festist í sessi. Væntingar um verðbólgu hafa einnig mikið að segja. Ef launafólk sér fram á áframhaldandi verðbólgu má búast við að það krefjist meiri launahækkana en ella til þess að verja kaupmátt. Ef fyrirtæki búast við hækkandi verðlagi og hækkandi launum eru þau líklegri til að verðsetja vörur hærra.

Spenna á vinnumarkaði kyndir líka undir launahækkanir og þar með verðbólguþrýsting. Á spenntum vinnumarkaði vantar vinnuafl og fyrirtæki keppa um starfsfólk. Þá er launafólk í góðri samningsstöðu og getur krafist meiri launahækkana.

Þegar faraldrinum linnti og umsvif í atvinnulífinu jukust á ný færðist hratt spenna yfir vinnumarkaðinn. Gallup gerir ársfjórðungslega könnun meðal stjórnenda fyrirtækja þar sem þeir eru meðal annars spurðir hvort þeir telji vanta vinnuafl á íslenskum vinnumarkaði. Eftir faraldurinn fjölgaði verulega þeim stjórnendum sem vantaði starfsfólk og atvinnuleysi, sem fór hæst í næstum 12% í faraldrinum, var komið niður í 2,8% síðasta sumar. Síðan þá virðist lítillega hafa slaknað á spennunni. Sífellt færri stjórnendur fyrirtækja segjast telja að það vanti starfsfólk og skráð atvinnuleysi var 3,6% í desember. Það er að jafnaði meira á veturna en sumrin en vel má vera að það haldi áfram að aukast á næstu mánuðum eftir því sem hátt vaxtastig dregur þróttinn úr einkaneyslu og fjármunamyndun.

Launaþróun ólík eftir hópum

Laun hafa hækkað mismikið eftir starfstéttum og atvinnugreinum síðustu misseri. Til þess að bera saman launaþróun ólíkra hópa á vinnumarkaði er ágætt að horfa á þróunina frá því rétt áður en lífskjarasamningarnir voru samþykktir snemma árs 2019 og þar til nú. Nýjustu gögn Hagstofunnar um launaþróun ólíkra hópa ná fram í októbermánuð.

Á því tímabili (mars 2019 – október 2023) hafa laun hækkað mest í greinum tengdum veitinga- og gistirekstri og langmest meðal þjónustu-, sölu-, og afgreiðslufólks, um 51,9%, og verkafólks, um 51,4%. Minnst hafa laun hækkað meðal stjórnenda, um 28,3%, og sérfræðinga, um 34,5%.

Þessi munur á launaþróun ólíkra starfstétta og atvinnugreina er ekki tilviljun. Á tímabilinu sem hér er til skoðunar hefur markmið kjarasamninga, sérstaklega lífskjarasamninganna, verið að hækka hlutfallslega mest laun þeirra launalægstu, svo sem með krónutöluhækkunum og þaki á launahækkanir. Á sama tíma hefur verið kröftug eftirspurn eftir starfsfólki í greinum tengdum ferðaþjónustunni, svo sem gisti- og veitingarekstri, sem ýtir sérstaklega undir launahækkanir í þeim geira, og minnst eftirspurn eftir starfsfólki í fjármála- og tryggingastarfsemi. Um þessar mundir virðist eftirspurn eftir starfsfólki þó mest í byggingariðnaði og næstmest iðnaði og framleiðslu.

Hlutfallsleg launaþróun ólíkra hópa hefur þó verið nokkuð jafnari eftir síðustu kjaraviðræður en á tímabilinu frá 2019 og fram að síðustu áramótum. Í lok janúar losna kjarasamningar á stærstum hluta vinnumarkaðarins eftir stutt samningstímabil. Enn ríkir mikil óvissa um framhaldið og útlit fyrir að viðræður Samtaka atvinnulífsins og breiðfylkingar stærstu félaga ASÍ séu í hnút þótt þær hafi á tímabili virst ganga vel.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Fólk við Geysi
19. ágúst 2025
Útflutningur í sókn en innflutningur líka
Vöruútflutningur frá Íslandi hefur aukist frá því í fyrra en samt hefur vöruskiptahalli aldrei verið meiri en nú. Þetta skýrist af stórauknum vöruinnflutningi, einkum á tölvubúnaði í tengslum við uppbyggingu gagnavera. Ferðaþjónustan hefur skilað auknum tekjum í ár en á móti hefur utanlandsferðum Íslendinga fjölgað og uppsafnaður kortaveltujöfnuður við útlönd var enn neikvæður í lok júlí.
Frosnir ávextir og grænmeti
18. ágúst 2025
Vikubyrjun 18. ágúst 2025
Við búumst við að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum á miðvikudag. Auk vaxtaákvörðunarinnar fáum við vísitölu íbúðaverðs í vikunni og nokkur uppgjör. Metfjöldi erlendra ferðamanna fór frá landinu í júlí, atvinnuleysi var óbreytt á milli mánaða og áfram var nokkur kraftur í greiðslukortaveltu heimila.
Seðlabanki Íslands
15. ágúst 2025
Ekki horfur á frekari vaxtalækkun á árinu
Við spáum því að peningastefnunefnd geri hlé á vaxtalækkunarferlinu og haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga jókst umfram væntingar í apríl og verðbólguvæntingar hafa haldist tiltölulega stöðugar. Þá virðist hagkerfið þola vaxtastigið vel, kortavelta hefur aukist sífellt síðustu mánuði og enn er þó nokkur velta á íbúðamarkaði. Peningalegt taumhald losnaði með aukinni verðbólgu í apríl og við teljum ólíklegt að peningastefnunefnd þyki tímabært að lækka raunstýrivexti enn frekar.
Flugvél á flugvelli
14. ágúst 2025
Spáum óbreyttri verðbólgu í ágúst
Við spáum því að verðbólga standi í stað í ágúst og mælist 4,0%. Eins og alla jafna í ágústmánuði má búast við að sumarútsölur gangi til baka að hluta. Einnig má gera ráð fyrir lækkandi flugfargjöldum. Næstu mánuði gerum við ráð fyrir að verðbólga aukist lítillega en hjaðni svo undir lok árs, og mælist 4,0% í desember.
Flugvöllur, Leifsstöð
13. ágúst 2025
Aukinn kaupmáttur, meiri neysla og fleiri utanlandsferðir
Neysla landsmanna virðist halda áfram að aukast og utanlandsferðir hafa verið þó nokkuð fleiri á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Launavísitalan hefur enda hækkað um 8,1% á síðustu tólf mánuðum og kaupmáttur haldið áfram að aukast. Atvinnuleysi hefur haldist nokkuð hóflegt. Það er þó lítillega meira en á sama tíma í fyrra og merki eru um að spenna á vinnumarkaði fari smám saman dvínandi.
11. ágúst 2025
Vikubyrjun 11. ágúst 2025
Í síðustu viku tóku gildi nýir tollar á innflutning til Bandaríkjanna. Nokkrar áhugaverðar hagtölur koma í þessari viku: brottfarir um Keflavíkurflugvöll, skráð atvinnuleysi, væntingakönnun markaðsaðila og greiðslumiðlun. Í vikunni fara fram verðmælingar vegna vísitölu neysluverðs og uppgjörstímabil í Kauphöllinni heldur áfram með sex uppgjörum.
Epli
5. ágúst 2025
Vikubyrjun 5. ágúst 2025
Gistinóttum á landinu fjölgaði alls um 8,4% á milli ára í júní. Verðbólga á evrusvæðinu hélst óbreytt á milli mánaða og Seðlabanki Bandaríkjanna hélt stýrivöxtum óbreyttum.
1. ágúst 2025
Mánaðamót 1. ágúst 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Bananar
28. júlí 2025
Vikubyrjun 28. júlí 2025
Verðbólga hjaðnaði úr 4,2% í 4,0% í júlí. Við teljum ekki horfur á að verðbólga fari aftur niður fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands í ár, heldur haldist á bilinu 4,0% til 4,3% út árið.
25. júlí 2025
Minni verðbólga með bættri aðferð
Nú er liðið rúmt ár síðan Hagstofan tók upp nýja aðferð við að mæla reiknaða húsaleigu, sem er sá hluti vísitölu neysluverðs sem metur kostnað fólks við að búa í eigin húsnæði.