Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um óbreyttri verð­bólgu í ág­úst

Við spáum því að verðbólga standi í stað í ágúst og mælist 4,0%. Eins og alla jafna í ágústmánuði má búast við að sumarútsölur gangi til baka að hluta. Einnig má gera ráð fyrir lækkandi flugfargjöldum. Næstu mánuði gerum við ráð fyrir að verðbólga aukist lítillega en hjaðni svo undir lok árs, og mælist 4,0% í desember.
Flugvél á flugvelli
14. ágúst 2025

Verðbólga var í takt við væntingar í júlí og gangi spá okkar eftir verður ágúst sjöundi mánuðurinn í röð með verðbólgu á bilinu 3,8% til 4,2%. Raunar verður verðbólga á því bili út þetta ár, samkvæmt spánni. Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% á milli mánaða í ágúst og að ársverðbólga verði óbreytt í 4,0%. Við teljum að lægri flugfargjöld til útlanda haldi aftur af hækkun vísitölunnar í ágúst, en almennt lækka flugfargjöld í ágúst þegar sumareftirspurnin fer dvínandi. Við gerum ráð fyrir að reiknuð húsaleiga hafi áhrif til hækkunar vísitölunnar í mánuðinum en auk þess má ætla að útsölulok hafi áhrif til hækkunar. Hagstofan birtir ágústmælingu vísitölu neysluverðs þann 28. ágúst nk.

Áfram minni hækkanir á matvöru

Verð á mat og drykkjarvörum hefur hækkað umfram almennt verðlag síðasta árið. Að hluta til skýrast hækkanirnar af hækkandi heimsmarkaðsverði á súkkulaði og kaffi, en einnig hefur verð á kjöti og mjólk hækkað umfram almennt verðlag. Í júlí hægði á hækkun matvöru og verð á matarkörfunni stóð nokkurn veginn í stað á milli mánaða. Árshækkun flestra liða lækkaði, að kaffi undanskildu. Leiðandi vísitala verðlagseftirlits ASÍ hefur lækkað um tæplega 0,2% það sem af er ágúst. Síðustu mánuði hefur Verðlagseftirlitið mælt minni hækkun á milli mánaða en Hagstofan. Við gerum nú ráð fyrir að matarkarfan hækki um 0,1% í ágúst.

Spáum áfram svipaðri þróun á reiknaðri húsaleigu

Við spáum því áfram að reiknuð húsaleiga hækki um 0,6% á milli mánaða, sem er svipað og meðalhækkun síðustu 12 mánaða. Þá gerum við ráð fyrir að annað vegna húsnæðis hækki um 0,24%, sem er nokkuð undir meðalhækkun seinustu tólf mánaða. Alls verða áhrif húsnæðiskostnaðar 0,15 prósentustig til hækkunar á vísitölunni, gangi spáin eftir.

Sumarútsölur ganga til baka

Eftir faraldurinn hafa sumarútsölur verið nokkuð dræmari en þær voru fyrir faraldur. Mæling Hagstofunnar fyrir júlí sl. sýndi tæplega 5% verðlækkun milli mánaða, eða verstu sumarútsölur frá því á covid-árinu 2020. Við gerum ráð fyrir að sumarútsölurnar gangi til baka í tveimur skrefum, í ágúst og í september, og hækki um 2,5% í hvorum mánuði.

Flugfargjöld lækka í ágúst og bensínverð lækkar áfram

Það sem af er ári hefur verð á flugfargjöldum til útlanda verið að meðaltali nokkuð svipað og í fyrra.  Flugfargjöld til útlanda hækkuðu meira í júní og júlí en við spáðum og voru tæplega 5% hærri en í júlí í fyrra. Flugfargjöld lækka alla jafna í ágúst og við spáum því að flugfargjöld til útlanda lækki um 9,5% á milli mánaða í ágúst og að flugmiðar verði því um 2% dýrari en í fyrra.

Samkvæmt verðmælingu okkar lækkar bensín um 0,8% á milli mánaða í ágúst, aðeins meira en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá.

Spá um þróun VNV í júlí 2025

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,4% 0,1% 0,02%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,2% 0,01%
Föt og skór 3,6% 2,5% 0,09%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,5% 0,3% 0,03%
Reiknuð húsaleiga 20,2% 0,6% 0,12%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,6% 0,6% 0,03%
Heilsa 4,1% 0,2% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 3,9% 0,4% 0,02%
- Kaup ökutækja 6,1% -0,2% -0,01%
- Bensín og díselolía 3,5% -0,8% -0,03%
- Flugfargjöld til útlanda 2,6% -9,5% -0,27%
Póstur og sími 1,6% 0,0% 0,00%
Tómstundir og menning 10,7% -0,1% -0,01%
Menntun 0,9% 1,0% 0,01%
Hótel og veitingastaðir 5,5% 0,6% 0,03%
Aðrar vörur og þjónusta 5,2% 0,5% 0,03%
Alls 100,0%   0,07%

Verðbólga ekki undir 4% á árinu

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% í ágúst, lækki um 0,06% í september, hækki um 0,32% í október og lækki um 0,07% í nóvember. Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 4,0% í ágúst, 4,2% í september, 4,2% í október og 4,0% í nóvember. Spáin er aðeins lægri en síðasta spá, sem við birtum daginn sem Hagstofan birti verðbólgutölur í júlí. Breytingin skýrist helst af því að verðkönnun okkar á bensíni sýnir meiri lækkun nú en við gerðum ráð fyrir þá. Einnig gerum við ráð fyrir minni verðhækkunum á matarkörfunni en áður, meðal annars vegna þess að verðvísitala ASÍ á matvöruverði sýnir nú lækkun á milli mánaða, en ekki hækkun.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.
Vikubyrjun
16. mars 2026
Vikubyrjun 16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
Stýrivextir
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting. 
Mánaðamót 4
12. mars 2026
Spáum 5,4% verðbólgu í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
9. mars 2026
Verulegur halli á viðskiptum við útlönd í fyrra
Verulegur halli mældist á viðskiptum við útlönd í fyrra. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði á síðasta ári, en er engu að síðar mjög sterk. Krónan veiktist á móti evru í fyrra, en styrktist á móti bandaríkjadal. Sterk staða útflutningsgreina gæti stutt við krónuna á þessu ári þó órói á alþjóðasviðinu auki óvissuna.
Vikubyrjun
9. mars 2026
Vikubyrjun 9. mars 2026
Talsvert minni halli var á viðskiptum við útlönd á fyrsta ársfjórðungi ársins en á sama fjórðungi árið áður. Í vikunni fáum við ferðamannatölur og skráð atvinnuleysi.