Hag­sjá: Veru­lega hef­ur hægt á hækk­un fast­eigna­verðs

Í gær birti Þjóðskrá Íslands tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í október. Verð hækkaði einungis um 0,17% í október sem er minnsta hækkun milli mánaða frá því í júní 2015. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 0,3% og verð á fjölbýli um 0,1%. Hækkanir frá fyrra ári eru á hraðri leið niður, en eftir sem áður mjög miklar.
17. nóvember 2017

Samantekt

Í gær birti Þjóðskrá Íslands tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í október. Verð hækkaði einungis um 0,17% í október sem er minnsta hækkun milli mánaða frá því í júní 2015. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 0,3% og verð á fjölbýli um 0,1%. Hækkanir frá fyrra ári eru á hraðri leið niður, en eftir sem áður mjög miklar. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð á fjölbýli hækkað um 17% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 19%. Heildarhækkunin nemur 17,6%, sem er eilítið meira en í síðasta mánuði. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 4,5% á síðustu sex mánuðum, en hækkaði um 12,5% næstu sex mánuði þar á undan.

Raunverð fasteigna hefur hækkað nær stöðugt frá því í upphafi ársins 2013, en lækkar nú örlítið milli mánaða. Verðbólga hefur verið lítil og stöðug síðustu misseri og því hefur raunverð fasteigna hækkað mun meira en ella. Að undanskildum húsnæðiskostnaði hefur ríkt verðhjöðnun í hagkerfinu frá því um mitt ár 2016. Vísitala neysluverðs án húsnæðis í nýliðnum október var þannig 2,3% lægri en í október 2016. Raunverð fasteigna hefur því hækkað um rúm 20% á einu ári, frá október 2016 til október 2017.

Sé litið á fjölda viðskipta með íbúðarhúsnæði má sjá að þróunin hefur verið mjög sveiflukennd á síðustu mánuðum. Fjölda viðskipta með fjölbýli hefur frekar fækkað allt frá því í nóvember 2016, þó með stökkum upp á við inn á milli, t.d. nú í október. Tölur um fjölda viðskipta fyrir fjölbýli eru þannig mun lægri en fyrir ári síðan.

Sé fjöldi viðskipta yfir lengri tíma skoðaður má sjá að tími samfellds vaxtar milli ára er liðinn, a.m.k í bili. Sé meðalfjöldi viðskipta á þessu ári borinn saman við sömu stærðir á síðustu árum má sjá að töluvert hefur dregið úr viðskiptum bæði með fjölbýli og sérbýli, eða sem nemur rúmum níu prósentustigum.

Íbúðum til sölu á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað nokkuð á þessu ári, og magnið er nú svipað og það var á seinni hluta ársins 2015. Þá hefur sölutími fasteigna einnig lengst. Hvort tveggja ætti að geta stuðlað að meiri ró á markaðnum.

Töluverð umræða hefur verið um mögulega kólnun fasteignamarkaðarins eftir að nokkuð dró úr verðhækkunum í sumar. Litlar hækkanir áttu hins vegar einungis við um fjölbýli á þessum tíma; hækkanir á sérbýli voru áfram miklar. Nú í október voru verðhækkanir litlar á bæði fjölbýli og sérbýli sem styrkir þá skoðun að tímabili mikilla verðhækkana fasteigna fari að linna. Eftir sem áður ber að undirstika að ætíð er varasamt að túlka breytingar milli einstakra mánaða. En sé litið yfir lengra tímabil nú, t.d. með því að bera saman síðustu sex mánuði og sex mánuði þar á undan lítur út fyrir að tímabil hóflegri verðhækkana sé runnið upp.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verulega hefur hægt á hækkun fasteignaverðs

Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur