Hag­sjá: Eig­in­fjárstaða sjáv­ar­út­vegs­ins aldrei sterk­ari

Eiginfjárstaða íslensks sjávarútvegs hefur styrkst með hverju árinu frá hruni og hefur hún aldrei mælst sterkari.
15. mars 2018

Samantekt

Eiginfjárhlutfall íslensks sjávarútvegs nam 42,2% í árslok 2016. Þetta er hæsta hlutfall sem mælst hefur frá því Hagstofan hóf að safna gögnum um rekstrartölur sjávarútvegsins árið 1997. Á árunum 1997 til 2007 var eiginfjárhlutfallið fremur stöðugt eða á bilinu 24 til 31%. Árið 2008 urðu hins vegar mikil umskipti vegna mikillar veikingar krónunnar og varð eiginfjárhlutfallið þá neikvætt um 18%. Þessi mikla breyting skýrist af því að íslenskur sjávarútvegur hefur lengi vel verið að mestu leyti fjármagnaður í erlendri mynt enda eru tekjur greinarinnar að mestu leyti í erlendum myntum. Síðan 2008 hefur leiðin legið stöðugt upp á við.

Sjávarútvegurinn hefur greitt niður skuldir

Heildarskuldir sjávarútvegsins urðu mestar árið 2008 þegar þær námu 403 ma. kr. en þær voru síðan komnar niður í 250 ma. kr. í lok árs 2016. Skuldirnar höfðu þannig lækkað um 153 ma. kr. á þessu tímabili. Skuldirnar eru að langmestu leyti í erlendri mynt. Ef skuldirnar hefðu einungis breyst í samræmi við breytingar á gengi krónunnar milli áranna 2008 og 2016 ættu skuldirnar að hafa verið 301 ma. kr. en ekki 250 ma. kr í árslok 2016. Mismunurinn þarna á milli liggur nettó uppgreiðslu skulda á þessu tímabili. Bæði uppgreiðslu af höfuðstól en einnig vegna samningsbundinna afborgana af lánum.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Eiginfjárstaða sjávarútvegsins aldrei sterkari (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Paprika
24. júní 2024
Vikubyrjun 24. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% í maí og vísitala leiguverðs um 3,2% samkvæmt gögnum sem bárust í síðustu viku. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum á meðan svissneski seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentustig. Eftirtektarverðasta innlenda hagtalan sem birtist í þessari viku er eflaust vísitala neysluverðs sem Hagstofan birtir á fimmtudaginn.
Fjölbýlishús
19. júní 2024
Vísitala íbúðaverðs á hraðri uppleið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í maí. Nafnverð íbúða er 8,4% hærra en á sama tíma í fyrra og raunverð íbúða er 4% hærra. Undirritaðir kaupsamningar um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu voru 150% fleiri í maí á þessu ári en í maí í fyrra.  
Krani með stiga
18. júní 2024
Vikubyrjun 18. júní 2024
Í síðustu viku fengum við tölur um atvinnuleysi, fjölda ferðamanna og greiðslukortaveltu hér á landi í maí. Seðlabanki Bandaríkjanna hélt vöxtum óbreyttum. Síðar í dag birtir HMS vísitölu íbúðaverðs.
Strönd
14. júní 2024
Óvæntur kraftur í kortaveltu í maí
Kortavelta íslenskra heimila jókst á milli ára í maí, bæði innanlands og erlendis. Síðustu mánuði hefur kortavelta nær alltaf dregist saman á milli ára en eykst nú meira en hún hefur gert frá því í janúar 2023. Þessi aukna kortavelta vekur athygli í þrálátu hávaxtastigi og samdrætti í hagkerfinu á fyrsta ársfjórðungi.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur