Fast­eigna­verð held­ur verð­bólg­unni uppi

Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,47% milli mánaða í september og mælist verðbólga nú 4,4% í samanburði við 4,3% í ágúst. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,19% og mælist 2,9% verðbólga á þann mælikvarða.
Gata í Reykjavík
28. september 2021 - Hagfræðideild

Mestu áhrif til hækkunar hafði reiknuð húsleiga (+1,7% milli mánaða, +0,29% áhrif á vísitölu) og föt og skór (+4,1% milli mánaða, +0,15% áhrif). Mestu áhrif til lækkunar höfðu flugfargjöld til útlanda (-7,0% milli mánaða, -0,11% áhrif). Breytingin milli mánaða var í samræmi við væntingar, en við höfðum spáð 0,5% milli mánaða. Það var tvennt sem kom á óvart í tölunum. Í fyrsta lagi hækkaði kostnaður við að búa í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) mun meira en við áttum von á. Í öðru lagi lækkuðu húsgögn og heimilisbúnaður milli mánaða, en við áttum von á hækkun.

Í septembertölunum sáum við áframhald á þeirri þróun sem hefur verið ráðandi það sem af er ári að framlag innfluttra vara er að minnka á sama tíma og framlag húsnæðiskostnaðar og þjónustu eykst. Þannig er ársverðbólgan svipuð í september og í janúar (4,4% í stað 4,3%) meðan framlag innfluttra vara hefur dregist saman um 1,4 prósentustig (úr 2,3% í 0,9%). Framlag húsnæðis hefur á þessu tímabili aukist um 1,1 prósentustig (úr 0,8% í 1,9%) og framlag þjónustu hefur aukist um 0,7 prósentustig (úr 0,5% í 1,1%).

Lesa Hagsjána í heild:

Hagsjá: Fasteignaverð heldur verðbólgunni uppi

Þú gætir einnig haft áhuga á
Byggingakrani og fjölbýlishús
25. sept. 2023
Vikubyrjun 25. september 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst, samkvæmt gögnum sem HMS birti í síðustu viku. Vísitalan lækkaði þó nokkuð í júní og júlí og hækkunin kom því nokkuð á óvart. Í næstu viku ber hæst birting Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs á fimmtudag.
Fasteignir
20. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs hækkar lítillega og verðbólguspáin með
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst. Árshækkun vísitölunnar fór úr 0,8% í 2,0%. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 9,6% færri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Vísitalan er hærri en við gerðum ráð fyrir við gerð verðbólguspár fyrir septembermánuð og því færum við hana upp og spáum 7,8% ársverðbólgu í stað 7,7%.
Flugvöllur, Leifsstöð
18. sept. 2023
Aukinn þjónustuútflutningur skýrist allur af vexti ferðaþjónustu
Um 282 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst. Ef sumarmánuðirnir eru teknir saman hafa aðeins einu sinni komið fleiri ferðamenn að sumri, árið 2018. Samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum Hagstofunnar jókst þjónustuútflutningur á fyrstu tveimur fjórðungum ársins um 21%, og má rekja allan þann vöxt til ferðaþjónustunnar.
Hverasvæði
18. sept. 2023
Vikubyrjun 18. september 2023
Í síðustu viku komu tölur um brottfarir frá Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og veltu greiðslukorta. Í þessari viku ber hæst vísitala íbúðaverðs, sem kemur á þriðjudag, og yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin verður út á miðvikudaginn.
Símagreiðsla
15. sept. 2023
Frekari merki um hægari takt
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
Flugvél
14. sept. 2023
Spáum 7,7% verðbólgu í september
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
Foss
11. sept. 2023
Vikubyrjun 11. september 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Mánaðaryfirlit yfir sértryggð skuldabréf - ágúst 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.
Bláa lónið
4. sept. 2023
Vikubyrjun 4. september 2023
Verðbólga jókst úr 7,6% í 7,7% samkvæmt ágústmælingu Hagstofunnar. Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi samkvæmt nýjum þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birti í vikunni, en hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 7,1%. Minni vöxtur einkaneyslu skýrir að stórum hluta minni hagvöxt á öðrum ársfjórðungi.
Fataverslun
31. ágúst 2023
Hægir á hagvexti og einkaneysla á mann dregst saman
Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Eins og við var að búast benda tölurnar til þess að hægt hafi á hagkerfinu, en hagvöxtur mældist 7,1% á fyrsta ársfjórðungi. Vaxtahækkanir hafa tekið að tempra innlenda eftirspurn á sama tíma og hægt hefur á vexti kaupmáttar á síðustu misserum. Einkaneysla jókst örlítið en vegna hraðrar fólksfjölgunar dróst hún saman á mann.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur