Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Fjölskylduleið

Finn­um þína Fjöl­skyldu­leið

Við vilj­um ein­falda þér líf­ið með því að setja sam­an þær trygg­ing­ar sem fjöl­skyld­ur þurfa helst.

Hvað er Fjölskylduleið?

Í Fjölskylduleið eru teknar saman tryggingar sem ná vel utan um þarfir fjölskyldufólks. Algengast er að sameina heimilistryggingu, ökutækjatryggingar, húseigendatryggingu og líf- og sjúkdómatryggingar í einum pakka. Þannig fást líka betri kjör.

Heimatryggingar

Fjölskylduleiðin grundvallast á heimatryggingapakka. Hægt er að velja mismunandi útfærslur út frá stærð fjölskyldunnar og þörfum heimilisins, en allar Heimatryggingarnar innihalda innbústryggingu ásamt ábyrgðartryggingu og áfallahjálp.

Hvernig finn ég mína Fjölskylduleið?

Til þess að komast í Fjölskylduleið þarf að vera með Heimatryggingu 2, 3 eða 4 og tvær aðrar tegundir trygginga úr listanum hér að neðan:

Velferðartorg

Velferðartorg er mikilvægur hluti af Fjölskylduleiðinni. Þar færðu auðveldan aðgang að sérfræðingum á borð við sálfræðinga, svefnráðgjafa og talmeinafræðinga og fyrsti tíminn er þér að kostnaðarlausu.

Á Velferðartorginu finnur þú einnig aðra sérfræðinga sem oft er annars erfitt og tímafrekt að fá tíma hjá.

Fríðindi fyrir þig

Með því að finna þína Fjölskylduleið færðu persónulegri þjónustu og allt að 10% endurgreiðslu ef fjölskyldan er tjónlaus.

Greiðir ekki eigin áhættu við ökutækjatjón sem fellur undir ábyrgðatryggingu.
Ókeypis bílaleigubíll í allt að fimm daga.
Afsláttur af bílstólum hjá Bílanaust og Fífu.
Afsláttur af öryggisvörum hjá Eldvarnarmiðstöðinni og Fífu.

Algengar spurningar

Þarftu aðstoð við að stilla þessu upp?

Skoðaðu möguleikana hér á vefnum til að finna þá leið sem hentar best. Þú getur líka óskað eftir aðstoð ráðgjafa eða prófað netspjallið okkar.

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.