- Tryggingin gildir á Norðurlöndum og á ferðalagi erlendis frá búsetulandi í allt að 92 daga.
- Tryggingin gildir í eitt ár eftir að barn flytur til annars lands en Norðurlandanna.
Barnatrygging
Barnatrygging
Slys og veikindi barna eiga ekki að vera fjárhagsleg byrði á fjölskyldum. Barnatrygging veitir þér og barninu þínu fjárhagslega vernd vegna slysa eða sjúkdóma barnsins.
Barnatrygging er í boði fyrir öll börn yngri en 16 ára og gildir hún frá eins mánaðar til 25 ára aldurs. Tvær mismunandi útfærslur bjóðast, Barnatrygging 1 og Barnatrygging 2. Þær veita sömu tryggingavernd en upphæðir bóta eru misháar.
- Barnatryggingin getur gilt frá eins mánaða aldri til 25 ára aldurs.
Hvað bætir tryggingin?
- Varanlega læknisfræðilega örorku í kjölfar slysa eða sjúkdóma. Læknisfræðileg örorka er metin út frá líkamlegum afleiðingum slyss eða sjúkdóms.
- Dánarbætur vegna andláts barns.
- Dagpeningar eru greiddir þegar barnið þarf að dveljast á sjúkrahúsi í fimm daga samfleytt eða lengur.
- Ef barnið greinist með sjúkdóm eða verður fyrir slysi greiðir tryggingin dagpeninga vegna umönnunar á heimili.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Bætur greiðast ekki vegna meðfæddra sjúkdóma.
- Bætur greiðast ekki vegna eftirtalinna sjúkdóma, heilkenna eða ástands:
- Þroskafrávika og þroskahömlunar, þ. á m., Downs heilkennis.
- ADD, DAMP eða ADHD (athyglisbrests, misþroska eða athyglisbrests með ofvirkni).
- Asperger heilkennis.
- Einhverfu.
- Lesblindu eða annarra námsraskana.
- Tourette heilkennis.
- OCD (áráttu- og þráhyggjuröskunar).
- Geðraskana eða geðsjúkdóma, þ.e. persónuleikatruflana, átraskana, taugageðrænna raskana, geðveiki, hugröskunar, þunglyndis eða langvinnrar þreytu. - Bætur greiðast ekki vegna sjúkdóma sem rót eiga að rekja til misnotkunar áfengis, lyfja eða vímuefna.
- Bætur vegna varanlegrar læknisfræðilegrar örorku greiðast ekki ef örorkan er metin lægri en 10%.
- Bætur greiðast ekki vegna slysa eða sjúkdóma af völdum vélknúinna ökutækja.
- Bætur vegna sjúkrahúslegu greiðast að hámarki í 365 daga vegna sama sjúkdóms eða slyss.
- Umönnunarbætur greiðast ekki ef barn á ekki rétt á umönnunarbótum frá almannatryggingum.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingin gildir ekki fyrir börn yngri en eins mánaðar.
- Ekki er hægt að kaupa trygginguna fyrir börn sem eru 16 ára og eldri.
- Umönnunarbætur og sjúkrahúslegubætur falla niður þegar sá vátryggði nær 18 ára aldri.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að atriði sem talin eru upp hér fyrir ofan eru ekki tæmandi listar heldur algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
