Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Fjölskyldan

Trygg­ing­ar sem halda vel utan um fjöl­skyld­una

Það verðmætasta sem þú átt

Fjölskyldutryggingarnar veita þér og þínum mikilvæga tryggingavernd ef þið upplifið tjón, sjúkdóma eða slys. Allar fjölskyldur eru einstakar og við bjóðum þér að sníða verndina að eigin þörfum.

Fjölskylduleið

Fjölskylduleiðin er sérsniðin samsetning trygginga fyrir fjölskyldur. Leiðinni fylgir víðtæk vildarþjónusta og endurgreiðsla ef þú ert tjónlaus. Finnum þína leið!

Velferðartorg

Velferðartorg er mikilvægur þáttur í Fjölskylduleiðinni. Þú færð auðveldan aðgang að sérfræðingum á borð við sálfræðinga, svefnráðgjafa og talmeinafræðinga.

Barnatrygging

Barnatrygging veitir þér og barninu þínu fjárhagslega vernd vegna slysa eða sjúkdóma sem barnið kann að verða fyrir.

Líftrygging

Fjárhagurinn er það síðasta sem við viljum þurfa að hafa áhyggjur af þegar slys eða andlát á sér stað. Líftrygging kemur í veg fyrir fjárhagsáfall ofan á aðra erfiðleika.

Sjúkdómatrygging

Við getum öll veikst á lífsleiðinni. Sjúkdómatrygging kemur í veg fyrir að fjárhagsáhyggjur bætist ofan á áfall vegna óvæntra veikinda.

Dýratryggingar

Gæludýr eru gleðigjafar, en þau geta slasast og orðið veik, alveg eins og við. Þar sem þau falla ekki undir hefðbundna heimilistryggingu þarf að tryggja þau sérstaklega.

Ferðatryggingar

Skyldu áhyggjurnar eftir heima með ferðatryggingu.

Slysa- og sjúkra­trygging

Víðtæk vernd sem þú getur sett saman úr mörgum valkostum og sem grípur þig ef slys eða sjúkdómur veldur tekjumissi eða örorku.

Sjúkrakostnaðartrygging

Ef þú flytur til Íslands og hefur ekki haft lögheimili á landinu í sex mánuði kemur sjúkrakostnaðartrygging vegna dvalarleyfis í stað sjúkratrygginga.

Þarftu aðstoð við að stilla þessu upp?

Skoðaðu möguleikana hér á vefnum til að finna þá leið sem hentar best. Þú getur líka óskað eftir aðstoð ráðgjafa eða prófað netspjallið okkar.

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.