Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Sjúkrakostnaðartrygging

Sjúkra­kostn­að­ar­trygg­ing

Ef þú flyt­ur til Ís­lands og hef­ur ekki haft lög­heim­ili á land­inu í sex mán­uði kem­ur sjúkra­kostn­að­ar­trygg­ing vegna dval­ar­leyf­is í stað sjúkra­trygg­inga.

Samkvæmt lögum um almannatryggingar þarf fólk að hafa lögheimili á landinu í sex mánuði til að njóta sjúkratrygginga og á það bæði við um þau sem flytja lögheimili sitt til Íslands í fyrsta skipti og þau sem flytja aftur til Íslands eftir búsetu erlendis.

Tryggingin veitir vernd í sex mánuði frá því að þú kemur til landsins og dvalarleyfi hefur verið gefið út. Hún er í meginatriðum eins og almannatryggingalögin og bætir til að mynda sjúkra-, lyfja- og lækniskostnað.

  • Sjúkrakostnaðartrygging gildir eingöngu á Íslandi.
  • Tryggingin nær ekki yfir meðgöngu og fæðingarhjálp.
Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.