Á þeim stað sem tilgreindur er í skírteini.
Sjúkdómatrygging
Með sjúkdómatryggingu færðu greiddar bætur ef þú greinist með tiltekinn sjúkdóm eða þarft að gangast undir aðgerð. Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skattfrjálsar.
Sjúkdómum og tilvikum sem tryggingin tekur til er skipt upp í bótaflokka og greiðast bætur einungis einu sinni úr hverjum flokki. Sjúkdómatryggingin er þá áfram í gildi en undanskilur þann flokk sem bætur hafa verið greiddar út.
- Til viðbótar við vernd fyrir kaupanda tryggingarinnar er innifalin vernd fyrir börn frá þriggja mánaða til 18 ára aldurs sem nemur helmingi af tryggingarfjárhæð foreldra.
- Þú færð endurgreiddan einn mánuð af iðgjaldi sjúkdómatryggingar ef þú nýtir þér boð í brjóstaskimun.
Hvað bætir tryggingin?
Bótaflokkarnir í tryggingunni eru eftirfarandi:
- Krabbamein.
- Hjarta- og æðasjúkdómar.
- Tauga- og hrörnunarsjúkdómar.
- Aðrir alvarlegir sjúkdómar eða slys.
*Ítarlegri listi er í upplýsingaskjali.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Aðrir sjúkdómar, aðgerðir og tilvik en þau sem tilgreind eru sem bótaskyld atvik eru ekki bætt.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Bætur greiðast ekki vegna krabbameins sem greinist á fyrstu þremur mánuðum eftir töku tryggingarinnar né við endurupptöku hennar.
- Bætur úr barnasjúkdómatryggingu greiðast aðeins einu sinni vegna hvers barns.
- Skilyrði fyrir bótaskyldu er að hinn tryggði lifi a.m.k. í 30 daga frá því að tryggingaratburður var staðfestur.
- Rangar upplýsingar í umsókn um trygginguna geta haft áhrif á bótarétt.

Tekjutap
Sú staða getur komið upp að við þurfum að búa við skertar tekjur á meðan við jöfnum okkur eftir alvarlegan sjúkdóm. Þar sem við getum ekki séð óvænt veikindi fyrir mælum við með sjúkdómatryggingu – hún kemur til móts við þetta tekjutap og gefur rými til að einbeita sér að bata án þess að hafa áhyggjur af fjárhagnum.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
