Á þeim stað sem tilgreindur er í skírteini.
Líftrygging
Líftrygging
Við fráfall af völdum sjúkdóma eða slysa styður líftrygging við fjölskylduna og greiðir rétthöfum bætur.
Líftrygging gildir til 75 ára aldurs. Fjárhæð líftryggingar tekur mið af tekjum, skuldum og fjölskylduhögum.
- Við kaup á líftryggingu ákveður þú hverjir rétthafarnir eru.
- Bætur eru greiddar í formi eingreiðslu og eru skattfrjálsar.
- Hægt er að sækja um líftryggingu frá 18 ára til 64 ára aldurs.
Hvað bætir tryggingin?
- Tryggingin greiðir bætur vegna andláts hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða slysa.
- Tryggingin greiðir dánarbætur ef lifandi fætt barn, fósturbarn eða stjúpbarn hins tryggða andast fyrir 18 ára aldur á meðan tryggingin er í gildi.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Sjálfsvíg innan árs frá töku tryggingarinnar.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Rangar upplýsingar í umsókn um trygginguna geta haft áhrif á bótarétt.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
