Á þeim stað sem tilgreindur er í skírteini.
Slysa- og sjúkratrygging
Slysa- og sjúkratrygging veitir víðtæka vernd sem þú getur sniðið að eigin þörfum. Tryggingin getur t.d. gilt um slys eingöngu, sjúkdóma eingöngu eða hvort tveggja og eins vinnutíma eingöngu, frítíma eingöngu eða hvort tveggja.
Þú getur fengið aðstoð við að ákvarða bætur og velja á milli þeirra valkosta sem standa til boða hjá rafrænum ráðgjafa eða í netspjalli og gengið frá tryggingunni hvar og hvenær sem þér hentar.
- Tryggingin skiptist í fjóra hluta sem allir eru valkvæðir. Innan hvers hluta eru þættir sem þú velur í umsókn.
- Með slysa- og sjúkratryggingu tryggir þú þér bætur ef slys eða sjúkdómur veldur þér tímabundnum tekjumissi eða varanlegri örorku.
Hvað bætir tryggingin?
Tryggingin greiðir bætur í eftirfarandi bótaflokkum:
- Slysatrygging vegna slysa sem verða í vinnu og/eða frítíma.
- Sjúkratrygging.
- Rekstrarstöðvunartrygging vegna slysa eða sjúkdóma.
- Staðgengilstrygging vegna slysa eða sjúkdóma.
*Sjá nánar í upplýsingaskjali, fyrir neðan.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Umferðarslys nema um annað sé sérstaklega samið.
- Slys sem verða í flugi nema um sé að ræða áætlunar- eða leiguflug á vegum leyfisskyldra aðila.
- Slys sem verða í fjallaklifri, ísklifri, bjargsigi, froskköfun, hnefaleikum, hvers konar glímu, akstursíþróttum, hvers konar svif- og drekaflugi, fallhlífarstökki eða teygjustökki.
- Slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum nema um annað sé sérstaklega samið.
- Sjúkdómur sem orsakast hefur af notkun áfengis eða ávana- og fíkniefna.
- Starfsorkumissir vegna meðgöngu, fæðingar eða fósturláts.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Læknisfræðileg örorka vegna sjúkdóms sem er lægri en 25% bætist ekki.
- Tímabundinn missir starfsorku vegna sjúkdóms ef starfsorkumissir er lægri en 50% bætist ekki.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
