Tryggingin gildir á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum EES og Færeyjum.
Ökutækjatrygging
Ökutækjatrygging
Við þurfum öll að vera með lögboðnar tryggingar á bílnum okkar. Ökutækjatryggingin tryggir bæði fólk um borð í bílnum og skemmdir á öðrum bílum.
Við getum ekki komið í veg fyrir að óhöpp verði, en ökutækjatrygging bætir slys og tjón sem þú kannt að valda öðrum.
Slysatrygging ökumanns og eigenda er innifalin, en með henni eru ökumaður og eigandi ef hann er farþegi tryggð fyrir líkamstjóni sem þeir verða fyrir við stjórn ökutækisins.
- Bílrúðutrygging er valkvæður hluti af ökutækjatryggingunni sem nánast allir kjósa og eru þá allar rúður bílsins tryggðar.
- Ökutækjatryggingin bætir ekki önnur tjón á bílnum sjálfum. Til þess er kaskótryggingin.
Innifalið í ökutækjatryggingu

Ábyrgðartrygging
Tryggingin nær til sérhverrar skaðabótakröfu sem skylt er að tryggja gegn samkvæmt lögum um ökutækjatryggingar vegna tjóna sem geta orðið af notkun ökutækisins.

Slysatrygging ökumanns og eiganda
Greiddar eru bætur fyrir líkamstjón vegna umferðarslyss sem ökumaður verður fyrir við stjórn eða eigandi sem farþegi ökutækisins.

Grænt kort
Ef farið er með bifreið til Evrópu getur vátryggingartaki fengið svokallað "grænt kort" ef ekið er innan aðildarríkja COB.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
