Á þeim stað sem tilgreindur er í skírteini.
Skaðatrygging lausafjár
Skaðatrygging lausafjár
Tryggðu lausafé gagnvart þjófnaði, skyndilegu óhappi og fleiri þáttum.
Skaðatrygging lausafjár er mjög víðtæk trygging sem bætir hvers konar tjón eða skemmdir á tryggðum munum af völdum bruna, þjófnaðar, vatnstjóns, flutningsslyss eða skyndilegs óhapps svo og ef hið tryggða fer alveg forgörðum.
- Víðtæk trygging sem svipar til viðbótarverndarinnar innbúskaskó sem bæta má við heimatryggingar.
- Tryggingin hentar vel ef þú hyggst tryggja ljósmyndabúnað eða annan tæknibúnað, hljóðfæri, skartgripi eða verkfæri.
Hvað bætir tryggingin?
- Bruni.
- Þjófnaður.
- Vatnstjón.
- Flutningsslys.
- Skyndilegt óhapp.
- Þegar hlutur fer alveg forgörðum.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Tjón vegna ónógra eða lélegra umbúða.
- Lausafé sem gleymist, týnist eða er skilið eftir á almannafæri.
- Þjófnaður úr ólæstum híbýlum, bifreiðum og bátum.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingin er ekki til hagsbóta fyrir aðra en þann tryggða þótt eignarréttur kunni að vera til staðar.
- Tryggingin fellur úr gildi við eigandaskipti.
- Tryggingarfjárhæð lækkar ef bætur eru greiddar.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
