Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Húseigenda­trygging

Húseigenda­trygging

Heim­il­ið þitt er í ör­ugg­um hönd­um með hús­eig­enda­trygg­ingu.

Húseigendatrygging bætir skemmdir sem verða á húseigninni vegna t.d. vatns, óveðurs og innbrota. Hún tryggir jafnframt húseiganda fyrir skaðabótaskyldu sem fallið getur á hann þegar bótaábyrgð skapast.

Ráðgjafar okkar ráðleggja þeim sem búa í fjölbýli að kanna hvort fasteigna- eða húseigendatrygging sé sameiginleg fyrir fjölbýlið eða hvort hver og einn hafi sína tryggingu.

  • Alhliða vernd fyrir fasteignina þína. Húseigendatrygging er stundum kölluð fasteignatrygging.
  • Bætir tjón sem kann að verða á fasteigninni sjálfri, t.a.m. gólfefnum, innréttingum og hurðum af völdum vatns, óveðurs, innbrota eða annarra ástæðna.

Hvað bætir tryggingin?

  • Vatnstjón.
  • Innbrot.
  • Brot á rúðugleri.
  • Fok- og óveðurstjón.
  • Frostsprungur á innanhússvatnsleiðslukerfi.
  • Tjón vegna snjóþunga sem sligar þak og veggi húseignar.
  • Brottflutning og húsaleigu þegar nauðsynlegt er að flytja úr húsnæði vegna tjóns.
  • Sótfall frá kynditækjum og eldstæðum.
  • Brot á hreinlætistækjum.
  • Skaðabótaábyrgð eiganda húseignar.
  • Málskostnað vegna ágreinings í einkamáli.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Tjón á innbúi.
  • Tjón vegna utanaðkomandi vatns.
  • Þann hluta húseignar sem olli tjóni, t.d. sjálf rörin í húsinu.
  • Tjón vegna langvarandi raka eða vatnsleka.
  • Tjón vegna stíflu í frárennslislögnum utanhúss.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Tryggingafjárhæðin takmarkast við brunabótamat húseignar, hlutar eða fylgifé húseignar sem ekki fellur undir brunabótamat er því ekki bætt.
  • Tjón sem Náttúruhamfaratryggingu Íslands er skylt að bæta er ekki bætt með þessari tryggingu.
  • Ef húseignin er 20 ára eða eldri þarf almennt að framkvæma fasteignaskoðun á henni áður en tryggingin tekur gildi.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.