Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Sumarhúsa­trygging

Ver­um áhyggju­laus í bú­staðn­um

At­hvarf­ið þitt í sveit­inni á að vera í ör­ugg­um hönd­um. Settu sam­an sum­ar­húsa­trygg­ingu sem hent­ar þér og bú­staðn­um þín­um.

Sumarbústaðurinn, innbúið, pallurinn og heiti potturinn eru í öruggum höndum með sumarhúsatryggingunni. Tryggðu þér áhyggjulausa frídaga í bústaðnum og vertu viss um að allt sé í lagi þegar hann er ekki í notkun.

  • Þú getur sniðið trygginguna að eigin þörfum.
  • Sumarhúsatryggingin tryggir bæði sumarhúsið sjálft og innbú þess.

Hvað bætir tryggingin?

  • Vatnstjón.
  • Innbrot og skemmdarverk.
  • Fok- og óveður.
  • Skemmdir á húseign og innbúi vegna brots, hruns og sigs.
  • Frostsprungu á innanhússvatnsleiðslukerfi.
  • Snjóþunga sem sligar þak og veggi húseignarinnar.
  • Sótfall frá kynditækjum og eldstæðum.
  • Brot á rúðugleri.
  • Brot á hreinlætistækjum.
  • Skemmdir og tjón á innbúi vegna bruna og þjófnaðar.
  • Skaðabótaábyrgð eiganda húseignar.
  • Innbúskaskó sem tekur til skemmda á innbúi af víðtækum orsökum (valkætt).
  • Tjón á viðbyggingu og/eða sólpalli af völdum bruna, þjófnaðar eða skemmda (valkvætt).
  • Tjón á heitum potti af völdum bruna, óveðurs og skemmda (valkvætt).

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Tjón vegna utanaðkomandi vatns.
  • Tjón vegna stíflu í frárennslislögnum utanhúss.
  • Innbú og aðra lausafjármuni sem eru ekki staðsettir í húseigninni að staðaldri.
  • Tjón vegna innbrots í ólæsta húseign.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Áður en trygging tekur gildi þurfa séfræðingar TM að meta ástand húseignarinnar, eftir atvikum.
  • Tryggingarfjárhæð húseignarinnar takmarkast við brunabótamat hennar eða eignarhluta hins tryggða.
  • Tryggingin tekur ekki til t.d. snjallsíma, snjallúra, skartgripa eða úra.
  • Tilteknir munir sem eru tryggðir sem innbú afskrifast eftir reglum sem fram koma í skilmálum.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.