Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Hagn­að­ur Lands­bréfa 978 millj­ón­ir króna á ár­inu 2025

Eystra horn
23. mars 2026 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2025.

Helstu niðurstöður eru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa á árinu 2025 var 978 milljónir króna eftir skatta, samanborið við um 1.272 milljónir á árinu 2024
  • Hreinar rekstrartekjur á árinu 2025 voru 2.367 milljónir króna, samanborið við 2.717 milljónir króna á árinu 2024
  • Eigið fé í árslok 2025 var 4.368 milljónir króna samanborið við 4.390 milljónir króna í árslok 2024
  • Í lok ársins 2025 voru eignir í stýringu samtals um 602 milljarðar króna samanborið við 543 milljarða króna árið áður

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:  

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu og hefur stjórn ákveðið að leggja til á aðalfundi að greiddur verði einn milljarður króna í arð til Landsbankans, sem er móðurfélag Landsbréfa. Landsbréf reka sem fyrr fjölbreytt úrval sjóða eða 43 mismunandi sjóði með samtals um 21 þúsund fjárfesta.  Heilt yfir má segja að markaðsaðstæður á árinu 2025 hafi að ýmsu leyti verið krefjandi. Innanlands gekk baráttan við verðbólgu illa með tilheyrandi tiltölulega háu vaxtastigi, auk þess sem ýmis áföll í hagkerfinu höfðu neikvæð áhrif á verðbréfamarkaði. Ávöxtun sjóða Landsbréfa var þó almennt góð að teknu tilliti til markaðsaðstæðna og í samanburði við samkeppnisaðila. Áfram er veruleg óvissa erlendis með ófriði sem hefur neikvæð áhrif á markaði og eins eru vísbendingar um kólnandi hagkerfi á Íslandi á sama tíma og erfiðlega gengur að ná niður verðbólgu. Á svona tímum er gildi ábyrgrar eignastýringar mikið. Sem fyrr tökum við hjá Landsbréfum það hlutverk alvarlega að ávaxta sparifé landsmanna og erum þakklát fyrir það traust sem þúsundir sjóðfélaga hafa sýnt Landsbréfum.“

Nánari upplýsingar á vef Landsbréfa

Þú gætir einnig haft áhuga á
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.
Loftmynd af Reykjastræti og umhverfi
11. júní 2026
Reykjastræti 6 fyrst til að hljóta frábæra fullnaðarvottun
Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun strax sumarið 2023 og nú hafa framkvæmd byggingar og frágangur lokið sömu vottun. Báðir verkþættir hlutu einkunnina frábært (e. excellent) sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins. Er bygging bankans fyrsta framkvæmdin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun með þeirri einkunn samkvæmt nýjum staðli frá 2016.
Netsvik
9. júní 2026
Við vörum við svikatölvupóstum
Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.