Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Við vör­um við svika­tölvu­póst­um

Netsvik
9. júní 2026

Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.

Mikilvægt er að skoða vel úr hvaða netfangi pósturinn berst þó nafn sendanda sé ólíkt. Ef þú færð póst með hlekk á innskráningarsíðu eða síðu þar sem beðið er um kortaupplýsingar er rétt að fara mjög varlega. Almennt eru slíkar beiðnir ekki sendar viðskiptavinum í tölvupósti. Við mælum með að þú farir beint inn á vefsíðu fyrirtækis og skráir þig inn þar.

Lentir þú í svikum?

Ef þú gafst upp kortaupplýsingar eða heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þarft þú að:

  • Frysta greiðslukortin í appinu
  • Skrá út öll innskráð tæki
  • Hafa samband við svikavakt Landsbankans

Svikavaktin er opin frá kl. 9-23 alla daga vikunnar og við hvetjum þig til að hringja ef þú telur þig hafa lent í einhverju misjöfnu. Utan þess tíma færast símtölin sjálfkrafa á neyðarnúmer Visakorta.

Við mælum með að þú kynnir þér netöryggismál og varnir gegn netsvikum á landsbankinn.is/oryggi.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.