Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lauf­ey Rún Ket­ils­dótt­ir ráð­in til Lands­bank­ans

19. júní 2026

Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.

Laufey Rún er lögfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík (ML) og Háskóla Íslands (BA). Hún hefur víðtæka reynslu af upplýsinga-, kynningar- og samskiptamálum. Undanfarin ár var Laufey Rún upplýsingafulltrúi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, verkefnastjóri og aðstoðarmaður þingflokks á Alþingi, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og blaðamaður á Morgunblaðinu. Samhliða námi og starfi hefur Laufey Rún einnig sinnt ýmsum félagsstörfum á sviði stjórnmála.

Staðan var auglýst í apríl og var Laufey Rún valin úr stórum hópi umsækjenda.

Laufey Rún hefur þegar hafið störf.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.