Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Það borg­ar sig að skoða send­and­ann

22. júní 2026

Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.

Það borgar sig alltaf að staldra við og skoða netfang sendanda í tölvupósti, sér í lagi ef pósturinn inniheldur hlekki, viðhengi eða beiðni um upplýsingar. Smá efasemdir geta skipt sköpum þegar kemur að því að verjast netsvikum. Það getur verið freistandi að afgreiða auðkenningarbeiðni eða borga reikning hratt til að ná hámarksslökun í fríinu, en það getur verið dýrt spaug ef um svikatilraun er að ræða. 

Við sendum fyrr í dag út póst til að vekja athygli viðskiptavina á netöryggisleiknum. Fyrir mistök var pósturinn sendur úr netfangi sem notað er til innanhúsprófana en ekki hefðbundnu Landsbankanetfangi. Verið var að innleiða nýtt kerfi og um byrjunarörðugleika var að ræða. Glöggir viðtakendur voru fljótir að láta okkur vita af þessu og má segja að pósturinn hafi verið enn áhrifaríkari en leikurinn einn og sér hefði getað verið. Það hafa skapast töluverðar umræður um bæði leikinn – sem þremur tímum eftir birtingu hafði fengið rúmar 3.500 spilanir - og póstinn frá okkur. Við þökkum fyrir ábendingarnar og árverknina og hvetjum ykkur til að prófa leikinn.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netsvik
19. júní 2026
Erum við að missa fókus?
Það rignir yfir landann þessa dagana svikapóstum í nafni allra helstu aðila sem við þekkjum – frá viðskiptabönkum, Skattinum, island.is, póst- og flutningsfyrirtækjum og lögreglunni, svo nokkur dæmi séu tekin. Allir þessir póstar hafa þann eina tilgang að stela af okkur peningum með því að veiða upp úr okkur kortaupplýsingar eða brjótast inn í netbankann okkar. Það vekur sérstaka athygli núna hversu margir láta blekkjast og falla fyrir þessum vefveiðum.