Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn upp­fær­ir per­sónu­vernd­ar­yf­ir­lýs­ingu

Austurbakki
23. júní 2026

Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.

Í persónuverndaryfirlýsingunni er meðal annars fjallað um hvaða persónuupplýsingar bankinn vinnur, í hvaða tilgangi vinnslan fer fram, hvaðan upplýsingar eru fengnar, hverjum þær kunna að vera afhentar og hvaða réttindi einstaklingar hafa samkvæmt persónuverndarlögum.

Markmiðið með uppfærslunni er að veita gagnsæjar og aðgengilegar upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá bankanum. Meðal efnislegra breytinga er umfjöllun um notkun gervigreindar, vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við markaðssetningu, vildarflokkun og sérsniðna þjónustu, auk vinnslu í tölfræðilegum tilgangi. Jafnframt hefur verið bætt við umfjöllun um vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við hlutverk bankans sem umboðsmanns vátrygginga fyrir TM.

Viðskiptavinir geta nýtt sér réttindagátt bankans til að nálgast upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga og eftir atvikum óskað eftir aðgangi að upplýsingum sínum eða nýtt önnur réttindi samkvæmt persónuverndarlögum.

Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum sem varða vinnslu persónuupplýsinga má beina til persónuverndarfulltrúa Landsbankans á netfangið personuvernd@landsbankinn.is.

Persónuvernd Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.