Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn ráð­gjafi við sölu á Nicetra­vel

Nicetravel
7. júlí 2026

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.

Stofnendur Nicetravel, Tryggvi Þór Ágústsson og Stefán Þór Gunnarsson, munu starfa með nýjum eigendum á næstu mánuðum til að tryggja hnökralaus eigendaskipti og farsæla yfirfærslu rekstrarins. 

Engilbert Hafsteinsson fer fyrir hópi nýrra eigenda og tekur hann jafnframt við starfi framkvæmdastjóra félagsins.

Nicetravel var stofnað árið 2012 og sérhæfir sig í ferðalögum fyrir litla hópa þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu, gæði, öryggi og einstaka upplifun af íslenskri náttúru.

Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun og veltir í dag yfir tveimur milljörðum króna á ári með góðri rekstrarafkomu. Reksturinn byggir á öflugum mannauði og flotastýringu, háu hlutfalli eigin sölu og skýru viðskiptamódeli sem hefur skapað traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt.

Ráðgjafar seljanda voru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Magna lögmenn. Ráðgjafar kaupanda voru Arion banki og Nordik lögfræðiþjónusta.

Mynd: F.v. Valur Fannar Þórsson, Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, Jóhann Einarsson, Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, Engilbert Hafsteinsson, fjárfestir, Stefán Þór Gunnarsson, stofnandi og fráfarandi rekstrarstjóri Nicetravel, Tryggvi Þór Ágústsson stofnandi og fráfarandi framkvæmdastjóri Nicetravel, Guðrún Nielsen, Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Einar Snær Ásbjörnsson, Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.
Loftmynd af Reykjastræti og umhverfi
11. júní 2026
Reykjastræti 6 fyrst til að hljóta frábæra fullnaðarvottun
Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun strax sumarið 2023 og nú hafa framkvæmd byggingar og frágangur lokið sömu vottun. Báðir verkþættir hlutu einkunnina frábært (e. excellent) sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins. Er bygging bankans fyrsta framkvæmdin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun með þeirri einkunn samkvæmt nýjum staðli frá 2016.
Netsvik
9. júní 2026
Við vörum við svikatölvupóstum
Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.
Austurbakki
5. júní 2026
Rarik sækir 10 milljarða króna í fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins
Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.
5. júní 2026
Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti
Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.