Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands

Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar.
Hlutafé GMÍ var afhent Símanum hf. í dag á efndadegi viðskiptanna og kaupverð greitt í samræmi við ákvæði kaupsamningsins. Eignarhlutur Landsbankans var 47,9% og samanlagður eignarhlutur Báls ehf. og Solvent ehf. var 52,1%.
GMÍ er fjártæknifyrirtæki á sviði kröfustýringar og greiðslulausna.
Ráðgjafar seljenda í viðskiptunum voru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, ARMA Advisory og BBA Fjeldco. Ráðgjafar kaupanda voru LOGOS lögmannsþjónusta og Deloitte.
