Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Reykja­stræti 6 fyrst til að hljóta frá­bæra fulln­að­ar­vott­un

Loftmynd af Reykjastræti og umhverfi
11. júní 2026

Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun strax sumarið 2023 og nú hafa framkvæmd byggingar og frágangur lokið sömu vottun. Báðir verkþættir hlutu einkunnina frábært (e. excellent) sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins. Er bygging bankans fyrsta framkvæmdin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun með þeirri einkunn samkvæmt nýjum staðli frá 2016.

Við vistvæna hönnun og vottun bygginga samkvæmt BREEAM-vottunarkerfinu er lagt mat á ýmsa þætti, s.s. umhverfis- og öryggisstjórnun á byggingar- og rekstrartíma, góða innivist sem m.a. tekur til hljóðvistar, loftgæða og lýsingar, góðrar orkunýtni og lágmörkunar á ýmis konar mengun frá byggingunni. Þetta er eitt af mjög fáum verkefnum hér á landi þar sem lagt hefur verið í þá vegferð að fá ekki einungis BREEAM-vottun heldur einnig svo háa einkunn á nýbyggingu og var unnið að því markmiði í öllu ferlinu. Mikil áhersla var lögð á að velja sterka samstarfsaðila til að ná markmiðum. EFLA sá um verkfræðihönnun, ÞG verk sá um uppsteypu hússins og Íslenskir aðalverktakar um fullnaðarfrágang. Umsjónaraðili bankans var VSB. Framkvæmdir stóðu yfir 2018-2023 og var húsið tekið í notkun árin 2022 og 2023.

Í fyrra hlaut byggingin steinsteypuverðlaun Steinsteypufélags Íslands en félagið veitir árlega verðlaun fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í mannvirkjagerð.

„Það er virkilega góður árangur að hafa tvöfalda BREEAM-vottun,“ segir Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. „Við settum markið hátt og unnum með frábærum hönnuðum og verktökum að byggingu hússins, sem eiga þakkir skildar fyrir gott verk. Við ákváðum að fara þessa leið því okkur var ofarlega í huga að það yrði hagkvæmt að byggja og reka húsið til framtíðar. Svo náðum við mikilvægasta markmiðinu sem var að skapa gott umhverfi fyrir starfsfólk þannig að við getum sett alla okkar orku í að veita viðskiptavinum frábæra þjónustu. Húsið hefur reynst okkur virkilega vel og við erum stolt af því hvernig til tókst og hversu vel við höfum nýtt húsið, bæði fyrir starfsemina og ýmsa viðburði.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.
Netsvik
9. júní 2026
Við vörum við svikatölvupóstum
Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.
Austurbakki
5. júní 2026
Rarik sækir 10 milljarða króna í fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins
Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.
5. júní 2026
Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti
Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.