Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Lands­bank­ans ann­ast skrán­ingu Styr­káss

8. júlí 2026

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.

Stefnt er að skráningu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2027.

Styrkás er rekstrarfélag og hefur frá stofnun 2022 byggt upp öfluga samstæðu með skýra langtímasýn. Dótturfélög þess eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni. Félagið sameinar þannig leiðandi fyrirtæki sem þjónusta uppbyggingu innviða og atvinnuvega um allt land. Skráning á markað hefur verið opinbert markmið félagsins frá upphafi og er þetta eðlilegt næsta skref í þeirri vegferð.

Skráning Styrkáss eykur einnig fjölbreytni fjárfestingakosta á íslenskum hlutabréfamarkaði og styrkir íslenskan fjármagnsmarkað.

„Markmiðið er að útfæra og stuðla að farsælli skráningu Styrkáss sem nýtist bæði félaginu sjálfu, nýjum hluthöfum og íslenskum hlutabréfamarkaði. Við erum mjög ánægð með það traust sem okkur er sýnt og hlökkum til að leiða Styrkás í gegnum næsta kafla í þeirra sögu og bjóða nýja hluthafa velkomna að ári,“ segir Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.