Frestur til að sækja um lánatryggingu úr Svanna

Landsbankinn hefur endurnýjað samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, til fjögurra ára. Nýr samningur gildir út september 2029.
Nú er opið fyrir umsóknir um lán og lánatryggingu úr Svanna vegna vorúthlutunar og er umsóknarfrestur til og með 15. mars 2026.
Svanni veitir lán eða ábyrgðartryggingar til fyrirtækja í eigu kvenna en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Einungis fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu kvenna og undir stjórn konu eða kvenna geta sótt um tryggingu. Einnig er gerð krafa um að verkefni leiði til aukinnar atvinnusköpunar.
Umsóknarform og nánari upplýsingar eru á vefsíðu Svanna.









