Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Lands­bank­ans var ráð­gjafi við kaup Styr­kás á Gallon

Austurbakki
5. febrúar 2026

Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung ehf. undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Seljandi er Skel fjárfestingafélag hf.

Gallon annast móttöku, geymslu og afgreiðslu eldsneytis frá birgðastöðvum félagsins en þar er eldsneytið afgreitt beint um borð í skip og á olíubíla. Félagið rekur birgða- og geymarými á sex stöðum við sjávarsíðuna og sinnir jafnframt geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum. Birgðastöðin í Örfirisey er með 14 geymslutanka og gegnir lykilhlutverki í starfsemi félagsins. Hjá félaginu starfa sex starfsmenn. Gallon á jafnframt 25% hlut í EBK ehf. sem rekur birgðastöð á Keflavíkurflugvelli og fylgir sá hlutur með í kaupunum. Heildarvirði Gallon í viðskiptunum var 2,9 milljarðar króna.

Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði og byggir starfsemin á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni. Tilgangurinn með kaupunum á Gallon er að styrkja kjarnasvið Styrkás í orku og efnavörum.

Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Logos lögmannsþjónusta. Ráðgjafar seljanda í viðskiptunum eru Arma Advisory og BBA // Fjeldco.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafundar Styrkás.

Tilkynning um kaupin á vef Styrkás

Þú gætir einnig haft áhuga á
17. apríl 2026
Hagkerfi í hægum vexti - hagspá til 2028
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Merki eru um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki.
1. apríl 2026
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 7. apríl nk.
26. mars 2026
Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus
Alfa Framtak hefur samið við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus.
Samstarfssamningur
26. mars 2026
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta framlengja samstarfssamning
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta (FS) hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Á samningstímanum mun Landsbankinn annast alla almenna bankaþjónustu og greiðslumiðlun fyrir rekstrareiningar FS. Bankinn mun einnig sjá um eignastýringu og ávöxtun á sjóðum FS og saman munu FS og Landsbankinn standa að ýmsum verkefnum og viðburðum.
Eystra horn
23. mars 2026
Hagnaður Landsbréfa 978 milljónir króna á árinu 2025
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2025.
Landsbankinn
23. mars 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi mánudaginn 23. mars 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi föstudaginn 27. mars 2026. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
10. mars 2026
Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum  
Landsbankinn, í samstarfi við TM, býður nú upp á tryggingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Viðskiptavinum bankans bjóðast betri kjör og fyrsta flokks tryggingaþjónusta.
Gulleggið 2026
27. feb. 2026
Affineva með Gulleggið 2026 í höndunum
Teymið Affineva stóð uppi sem sigurvegari í lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og menningar, afhenti teyminu vegleg peningaverðlaun fyrir hönd Landsbankans sem hefur um árabil verið aðalbakhjarl keppninnar.
27. feb. 2026
EM-herferð Landsbankans með þrjár tilnefningar
Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.