Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Vild – nýtt vild­ar­kerfi

Það er okkur mikil ánægja að kynna Vild, nýtt vildarkerfi Landsbankans, sem byggir á heildarsambandi viðskiptavina við okkur. Viðskiptavinir safna stigum út frá því hvaða þjónustu þeir nota, hversu virkir þeir eru og hversu lengi þeir hafa verið í viðskiptum við bankann. Með fleiri stigum færast viðskiptavinir upp um þrep og fríðindin aukast.
5. júní 2026

Allir viðskiptavinir 18 ára og eldri færast sjálfkrafa inn í Vild. Hægt er að sjá sína Vild og fríðindi í Landsbankaappinu – við hvetjum þig til að kynna þér málið.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Við viljum að fólk finni að við metum viðskiptasambandið, hvort sem fólk er í umfangsmiklum viðskiptum eða hefur verið lengi hjá okkur. Vildarkerfið er skýrt, gagnsætt og við bjóðum okkar bestu kjör og auðvitað eru Aukakrónur Landsbankans punkturinn yfir i-ið.“

Meiri fríðindi í Vild Landsbankans

Vild er þrepaskipt, auk þess sem yngri en 18 ára eru með sérkjör. Helstu fríðindin í Vild eru:

  • Enn meiri Aukakrónusöfnun.
  • Hærri vextir á innlánum og allt að 7,66% vextir á ársgrundvelli á sparnaði í appi, m.v. núverandi vaxtastig.
  • Betri kjör á óverðtryggðum íbúðalánum á föstum vöxtum.
  • Allt að 10% endurgreiðsla af tryggingum.
  • Aðgangur að velferðartorgi TM sem m.a. veitir ókeypis aðgang að tíma hjá sérfræðingi, s.s. sálfræðingi og talmeinafræðingi.
  • Hagstæðari sjóðaviðskipti.
  • Afsláttur af lántökugjaldi nýrra íbúðalána og við endurfjármögnun.

Stigasöfnun ræður vildarþrepinu

Samanlagður stigafjöldi ræður vildarþrepi. Hér er dæmi um stigasöfnun en þú finnur mun meiri upplýsingar inni í appinu:

  • Ef þú ert með íbúðalán hjá bankanum færðu 5.000 stig.
  • Ef þú hefur verið með íbúðalán hjá okkur í 10 ár eða lengur færðu 2.000 stig og heldur þeim þegar þú greiðir lánið upp.
  • Ef þú ert með viðbótarlífeyrissparnað hjá okkur færðu 3.000 stig. 60 ára og eldri halda stigunum ef eign í sjóðum er hærri en 1 milljón króna.
  • Ef þú hefur verið virkur viðskiptavinur í 2-4 ár færðu 1.000 stig, 2.000 stig fyrir 5-9 ár og 3.000 stig fyrir 10 ár eða lengur.
  • Einnig eru gefin stig fyrir að spara hjá bankanum, vera í verðbréfaviðskiptum, með tryggingarnar hjá okkur, vera virkur í sjálfsafgreiðslulausnum og margt fleira.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.