Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Rarik sæk­ir 10 millj­arða króna í fyrstu grænu skulda­bréfa­út­gáfu fé­lags­ins

Austurbakki
5. júní 2026

Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.

Alls bárust 34 tilboð að fjárhæð 14,7 milljarðar króna að nafnverði í skuldabréfaflokkinn á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,65–3,99%. Tilboðum að fjárhæð 10 milljarðar króna var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,77%. Um er að ræða stærsta skuldabréfaútboð hjá fyrirtæki hér á landi í mörg ár sem endurspeglar góðan áhuga fjárfesta á útgáfunni.

Fjármagnið verður nýtt í samræmi við græna fjármögnunarumgjörð Rarik til að fjármagna eða endurfjármagna verkefni sem styðja við orkuskipti, uppbyggingu og endurnýjun dreifikerfis og aðra sjálfbæra orkuinnviði. Umgjörðin hefur hlotið vottun frá Moody’s Ratings og fékk hæstu mögulegu einkunn, SQS1 (Excellent).

Landsbankinn annaðist umgjörð, sölu og kynningu skuldabréfaútgáfunnar fyrir Rarik og kom einnig að gerð grænnar fjármögnunarumgjarðar félagsins. Fyrirtækjaráðgjöf og Markaðsviðskipti bankans höfðu umsjón með útboðinu og munu jafnframt annast skráningu skuldabréfaflokksins á Nasdaq Iceland.

Elísabet Ýr Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Rarik, segir: „Við erum afar ánægð með árangurinn af fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu Rarik og þær góðu viðtökur sem útgáfan fékk. Samstarfið við Landsbankann hefur verið mjög farsælt frá upphafi til enda. Bankinn leiddi okkur af mikilli fagmennsku í gegnum uppsetningu grænu fjármögnunarumgjarðarinnar og alla vinnu við undirbúning útgáfunnar. Sú vinna skilaði þessari frábæru niðurstöðu sem við erum mjög stolt af. Fyrir Rarik er útgáfan mikilvægur áfangi í að tengja fjármögnun félagsins enn betur við þau umfangsmiklu verkefni sem fram undan eru í áframhaldandi uppbyggingu, endurnýjun og styrkingu dreifikerfisins, sem er lykilforsenda orkuskipta og sjálfbærra orkuinnviða um land allt.“ 

Eyrún Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar Landsbankans, segir: „Við erum mjög ánægð með þær viðtökur sem útboðið fékk og þann mikla áhuga sem fjárfestar sýndu fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu Rarik. Niðurstaðan undirstrikar traust markaðarins á félaginu og þeim mikilvægu innviðaverkefnum sem fjármögnuð verða með útgáfunni. Við hjá Landsbankanum erum mjög ánægð og stolt af því að hafa komið að þessari fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins sem var afar vel heppnuð á alla mælikvarða.“

Nánari upplýsingar um græna fjármögnunarumgjörð Rarik og sjálfbærniverkefni félagsins má finna á vef þess.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.