Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um

Landsbankinn
21. maí 2026

Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi föstudaginn 22. maí 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi fimmtudaginn 28. maí 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Vextir á íbúðalánum

  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Fastir vextir til 12 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Fastir vextir til 36 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,20 prósentustig.
  • Fastir vextir til 60 mánaða á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,15 prósentustig.
  • Fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,15 prósentustig.

Aðrir útlánsvextir

  • Kjörvextir á óverðtryggðum lánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.

Innlánsvextir

  • Vextir á sparireikningum í appi hækka um 0,25 prósentustig.
  • Vextir á öðrum óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig.
  • Vextir á óverðtryggðum fastvaxtareikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig.
  • Vextir á reikningum í erlendri mynt taka mið af vaxtastigi viðkomandi myntar.

Breytingarnar eru gerðar í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 20. maí sl. en þá hækkaði Seðlabankinn meginvexti um 0,25 prósentustig.

Breytingar á vöxtum útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka. Breytingar á vöxtum um greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 ma.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.
Loftmynd af Reykjastræti og umhverfi
11. júní 2026
Reykjastræti 6 fyrst til að hljóta frábæra fullnaðarvottun
Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun strax sumarið 2023 og nú hafa framkvæmd byggingar og frágangur lokið sömu vottun. Báðir verkþættir hlutu einkunnina frábært (e. excellent) sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins. Er bygging bankans fyrsta framkvæmdin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun með þeirri einkunn samkvæmt nýjum staðli frá 2016.
Netsvik
9. júní 2026
Við vörum við svikatölvupóstum
Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.
Austurbakki
5. júní 2026
Rarik sækir 10 milljarða króna í fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins
Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.
5. júní 2026
Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti
Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.