Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lista­há­tíð í Reykja­vík er haf­in – tvær sýn­ing­ar í Lands­bank­an­um

Listahátíð í Reykjavík 2026
2. júní 2026

Listahátíð í Reykjavík hófst formlega með glæsilegri opnunarhátíð síðastliðinn laugardag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.

Á opnunarhátíðinni fengu gestir smjörþefinn af viðburðum hátíðarinnar og að henni lokinni leiddu fjórar sveitir Skólahljómsveita Reykjavíkur gesti fram hjá húsi Landsbankans í Reykjastræti að Hörputorgi þar sem flutt var verkið Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson. Það var mikið um dýrðir, eins og sjá má hér fyrir neðan.

Landsbankinn er stoltur bakhjarl Listahátíðar í Reykjavík sem fer fram dagana 30. maí til 14. júní. Viðburðir verða haldnir víða í borginni og á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast dagskrá hátíðarinnar á www.listahatid.is.

Tvær sýningar á Listahátíð í Reykjavík í húsi Landsbankans

Í tengslum við hátíðina hefur bankinn lánað rými sitt á horni Reykjastrætis 6 undir tvær áhugaverðar listasýningar sem gestir geta skoðað sér að kostnaðarlausu. Sýningarnar eru annars vegar á vegum Sköpunarmiðstöðvarinnar á Austurlandi og hins vegar ljósmyndasýningin Sjónarhorn. Sýningarnar voru opnaðar 1. júní og dyrnar verða opnar daglega kl. 12.00-17.00 á meðan á hátíðinni stendur.

Tíu ára saga Sköpunarmiðstöðvarinnar í verkum 16 listafólks

Á yfirlitssýningu Sköpunarmiðstöðvarinnar á Austurlandi verða sýnd verk eftir 16 listafólk, en öll eiga þau það sameiginlegt að hafa unnið að listsköpun á vinnustofu miðstöðvarinnar.

Sýningin varpar ljósi á tíu ára starf miðstöðvarinnar og þann fjölbreytta vettvang sem hún hefur skapað fyrir listafólk til að þróa hugmyndir sínar og verk. Árið 2025 hlaut Sköpunarmiðstöðin Eyrarrósina, viðurkenningu sem Listahátíð í Reykjavík og samstarfsaðilar veita framúrskarandi menningarstarfi á landsbyggðinni.

Annað sjónarhorn á Ísland

Ljósmyndasýningin Sjónarhorn sameinar verk fimm listafólks sem vinna öll með ljósmyndir. Á sýningunni sýna þau Ísland frá öðru sjónarhorni en oft birtist í hefðbundnum ferðamannamyndum.

Myndirnar beina sjónum okkar að hversdagsleikanum, veðrinu, samfélagslegum atburðum, fólki og umhverfi. Verkin bjóða gestum að staldra við og skoða landið og samfélagið með nýjum augum.

...

Landsbankinn leggur áherslu á að taka þátt í fjölbreyttu menningarstarfi og að skapa vettvang þar sem list og samfélag mætast. Við hvetjum öll áhugasöm til að líta við í Reykjastræti 6 og njóta sýninganna.

Listahátíð í Reykjavík 2026
Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.