Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti

Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.
Gleðigöngupotturinn hefur það markið að styrkja einstaklinga og hópa sem vilja taka þátt í Gleðigöngunni með fjölbreyttum, áhugaverðum og táknrænum atriðum. Úthlutunarupphæð hvers árs er 1.500.000 kr. og sótt er um á síðu Hinsegindaga, skipuleggjanda göngunnar. Umsóknarfrestur er til 14. júní og dómnefnd Gleðigöngupotts úthlutar úr pottinum í lok mánaðarins.
Hinsegin dagar fara fram frá 4.-9. ágúst og er Gleðigangan hápunktur þeirra. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja og um og ekki síst til að taka þátt í göngunni.










