Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Helgi F. Mar­geirs­son nýr úti­bús­stjóri á Sauð­ár­króki

Helgi F. Margeirsson
5. júní 2026

Helgi F. Margeirsson hefur tekið við sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. Hann hefur starfað í útibúinu frá árinu 2009, lengst af sem viðskiptastjóri fyrirtækja.

Helgi er með B.Sc.-próf í viðskiptafræði frá Birmingham Southern College í Alabama-ríki í Bandaríkjunum og M.Sc.-próf í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Árósum í Danmörku. Hann hefur einnig lokið námi til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri og hefur m.a. kennt áfanga í meistaranámi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og við Körfuboltaskóla Norðurlands sem hann stofnaði árið 2019.

Alhliða fjármálaþjónusta og öflug starfsemi

Í útibúi Landsbankans á Sauðárkróki er boðið upp á alhliða fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir. Þar er bæði hægt að sækja fjármála- og tryggingaráðgjöf og hraðbanki er aðgengilegur allan sólarhringinn.

Undir útibúið á Sauðárkróki heyra einnig afgreiðslur bankans á Blönduósi, Hvammstanga og Skagaströnd. Alls starfa 12 manns fyrir bankann á þessum stöðum og sinnir starfsfólk bæði störfum í útibúunum og veitir öðrum viðskiptavinum bankans þjónustu, óháð staðsetningu. Markaðshlutdeild Landsbankans á Norðurlandi vestra er sterk og vaxandi.

Þess má geta að Helgi er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Tindastóli aðeins 14 ára gamall og þann síðasta 37 ára með sama liði. Í dag hangir treyjan hans, #8, uppi á heimavelli Tindastóls í Síkinu á Sauðárkróki.

Helgi tekur við stjórn útibúsins af Birgi Rafni Rafnssyni sem hafði verið útibússtjóri bankans á Sauðárkróki frá 2010.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.