Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Tíu millj­ón­um út­hlut­að í náms­styrki

Námsstyrkir 2026
29. maí 2026

Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 27. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjöunda sinn og var heildarupphæð þeirra hækkuð í 10 milljónir króna í ár. Alls bárust um 330 umsóknir.

Veittir eru styrkir í fjórum flokkum: til framhaldsskólanáms, grunnnáms í háskóla, framhaldsnáms í háskóla og listnáms.

Dómnefndin leitaðist við að velja metnaðarfulla og framúrskarandi námsmenn. Einnig er horft til framtíðarsýnar, afreka í íþróttum, þátttöku í félagsmálum og öðru er nemendur kunna að leggja stund á.

Framhaldsskólanám – 400.000 kr. styrkur

  • Alexander Chavdarov Ivanov – Menntaskólinn í Reykjavík
  • Anh Ngoc - Kvennaskólinn í Reykjavík
  • Íris Ísafold Sigurbjartsdóttir -  Menntaskólinn á Akureyri og Tónlistarskólinn á Akureyri
  • Úlfar Jökull Eyjólfsson – Menntaskólinn í Reykjavík 

Grunnnám á háskólastigi – 600.000 kr. styrkur

  • Inga Rakel Aradóttir – Vélaverkfræði við Háskóla Íslands
  • Pétur Orri Pétursson – Hagfræði við Háskóla Íslands
  • Sigurður Ari Stefánsson – Tölvunarfræði með japanskt mál og menningu sem aukagrein
  • Tanja Rut Rúnarsdóttir – Hagnýt stærðfræði við Háskóla Íslands

Framhaldsnám á háskólastigi – 800.000 kr. styrkur

  • Ásgerður Erla Haraldsdóttir - Meistaranám í stjórnun við Universitat Pompeu Fabra í Barcelona
  • Benedikt Vilji Magnússon - Meistaranám í hagnýtri stærðfræði við ETH-háskólann í Zurich í Sviss
  • Kristján Dagur Egilsson - Meistaranám í tölvu- og stærðfræðiverkfræði við háskóla Stanford og Minnesota, með áherslu á gagnavísindi
  • Viktor Már Guðmundsson - Meistaranám í gagnavísindum við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum

Listnám – 700.000 kr. styrkur

  • Auður Mist Eydal Halldórsdóttir - Meistaranám í myndlist við Goldsmiths í London
  • Benedikt Gylfason - Grunnnám við Berklee College of Music í Boston
  • Helga Diljá Jörundsdóttir - Fiðlunám við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn
  • Rut Rebekka Hjartardóttir - Samtímalistabraut Listaháskóla Íslands

Dómnefndina skipuðu Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor við Háskóla Íslands sem var formaður, Guðrún Norðfjörð, verkefnastjóri hjá Aton og Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Landsbankans.

Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, setti athöfnina og afhenti styrkþegum blómvönd í viðurkenningarskyni.

Á myndunum má sjá styrkhafa eða fulltrúa þeirra ásamt Söru og Runólfi Smára.

Námsstyrkir 2026

Alexander Chavdarov Ivanov.

Námsstyrkir 2026

Anh Ngoc.

Námsstyrkir 2026

Auður Mist Eydal Halldórsdóttir.

Námsstyrkir 2026

Benedikt Gylfason.

Námsstyrkir 2026

Benedikt Vilji Magnússon.

Námsstyrkir 2026

Móðir Tönju Rutar Rúnarsdóttur, Erna María Jónsdóttir tók við viðurkenningu fyrir hennar hönd.

Námsstyrkir 2026

Systir Kristjáns Dags, Guðrún Klara Egilsdóttir, tók viðurkenningu fyrir hans hönd.

Námsstyrkir 2026

Móðir Helgu Diljár Jörundsdóttur, Halla Hrund Birgisdóttir, tók við viðurkenningu fyrir hennar hönd.

Námsstyrkir 2026

Inga Rakel Aradóttir.

Námsstyrkir 2026

Móðir Ásgerðar Erlu, Ingunn Hansdóttir, tók við viðurkenningu fyrir hennar hönd.

Námsstyrkir 2026

Íris Ísafold Sigurbjartsdóttir.

Námsstyrkir 2026

Pétur Orri Pétursson.

Námsstyrkir 2026

Rut Rebekka Hjartardóttir.

Námsstyrkir 2026

Sigurður Ari Stefánsson.

Úlfar Jökull Eyjólfsson.

Námsstyrkir 2026

Viktor Már Guðmundsson.

Námsstyrkir 2026

Runólfur Smári Steinþórsson, formaður dómnefndar.

Námsstyrkir 2026

Frá afhendingu.

Námsstyrkir 2026

Frá afhendingu.

Námsstyrkir 2026

Frá afhendingu.

Þú gætir einnig haft áhuga á
16. nóv. 2026
Hugarafl hlýtur 4 milljóna króna styrk
Landsbankinn veitti Hugarafli fjögurra milljóna króna styrk í nafni allra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Líkt og undanfarin ár veitir bankinn styrk til góðs málefnis í nafni fyrirtækjanna. 
13. nóv. 2026
Bláa Lónið hefur lokið hlutafjárútboði
Almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. lauk kl. 16:00 þann 13. nóvember. Alls bárust tæplega 4 þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 ma. kr.
10. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsinu. Tekið verður við áskriftum á vef bankans frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
10. nóv. 2026
Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga
Við höfum gefið út nýjan og endurbættan netbanka einstaklinga. Þar er enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavini að fylgjast með fjármálum sínum og sinna bankaerindum.
9. nóv. 2026
Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja
Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.