Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Jón Þór Gríms­son nýr yf­ir­lög­fræð­ing­ur Lands­bank­ans

Jón Þ. Grímsson
20. maí 2026

Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans.

Yfirlögfræðingur Landsbankans á mikilvægan þátt í að styðja við hlutverk bankans um að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð viðskiptavina. Horft var til þess í ráðningarferlinu að góður yfirlögfræðingur þarf að vera lausnamiðaður, hafa áhuga og skilning á framþróun nútímalegrar bankaþjónustu og ekki síst gæta að jafnvægi milli viðskiptaákvarðana og áhættu.

Jón Þór lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2003 og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá American University of Rome árið 2000. Hann er auk þess með lögmannsréttindi og  verðbréfaréttindi. Þá hefur hann sótt fjölda námskeiða og verið stjórnarmaður.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Jón Þór hefur skýra og metnaðarfulla sýn á þau tækifæri sem felast í því að þróa áfram lögfræðiþjónustu bankans til stuðnings stefnu hans og markmiðum. Hann hefur öðlast verðmæta reynslu í fjölbreyttum störfum innan bankans, hefur góða yfirsýn yfir fjármálamarkaðinn og mætir sterkur til leiks.“

Yfirlögfræðingur stýrir Lögfræðiþjónustu bankans sem heyrir beint undir bankastjóra og sinnir fjölbreyttri lögfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir svið bankans og bankaráð.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.