Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Grunn­skóli Húna­þings vestra bar sig­ur úr být­um í Skóla­hreysti 2026

Skólahreysti 2026
26. maí 2026

Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði Skólahreysti 2026 eftir spennandi úrslitakeppni sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 23. maí. Keppnin var æsispennandi og skemmtileg en liðið stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig eftir glæsilega frammistöðu í öllum greinum keppninnar.

Í öðru sæti var Laugalækjarskóli og Víðistaðaskóli hafnaði í því þriðja, báðir með 54 stig.

Stemningin í íþróttamiðstöðinni að Varmá var rafmögnuð og keppendur fengu öflugan stuðning frá samnemendum, fjölskyldum og öðrum gestum. Keppt var í fimm greinum þar sem reyndi á styrk, úthald, liðsheild og einbeitingu.

Til úrslita í Skólahreysti 2026 kepptu Álfhólsskóli, Árbæjarskóli, Áslandsskóli, Egilsstaðaskóli, Garðaskóli, Grunnskóli Ísafjarðar, Grunnskóli Húnaþings vestra, Heiðarskóli, Lágafellsskóli, Laugalækjarskóli, Setbergsskóli og Víðistaðaskóli.

Íslandsmet í hreystigreipi

Sérstaka athygli vakti árangur Sögu Björgvinsdóttur, nemanda í Grunnskólanum á Ísafirði, sem sigraði í hreystigreipinni eftir að hafa hangið í 26 mínútur og 31 sekúndu. Árangur hennar er sá næstbesti í sögu Skólahreysti en Saga á einnig Íslandsmetið í greininni, sem hún setti í undanriðli keppninnar í ár þegar hún hékk í 30 mínútur og 9 sekúndur.

Nýir samstarfsaðilar

Landsbankinn er aðalbakhjarl Skólahreysti og hefur stutt keppnina um árabil. Í ár urðu ákveðin straumhvörf, en þrír synir stofnendanna Andrésar og Láru, þeir Axel, Örn og Jökull, taka nú þátt í rekstrinum. Nýir samstarfsaðilar hafa líka bæst í hópinn og aukin áhersla verður framvegis lögð á lýðheilsu í víðari skilningi, hollt og gott mataræði til viðbótar við hreysti og hreyfingu. Við hlökkum til að vinna áfram að sterkri keppni með nýju og öflugu liði.

Við óskum öllum keppendum, þjálfurum og skólum innilega til hamingju með glæsilega keppni og frábæran árangur í vetur.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.