Vörum við svikapóstum í nafni bankans

Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.
Við ráðleggjum fólki eindregið að opna ekki póstana, smella ekki á hlekki, samþykkja ekki auðkenningar eða gefa upp kortaupplýsingar. Hafi það verið gert er mikilvægt að hafa strax samband við Landsbankann í síma 410-4000 eða senda tölvupóst á svikavakt@landsbankinn.is










