Fréttir
Landsbankinn breytir föstum vöxtum íbúðalána
29. apríl 2022 - Landsbankinn
Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum til 36 mánaða hækka um 0,35 prósentustig og fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum til 60 mánaða hækka um 0,30 prósentustig.
Fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum til 60 mánaða lækka um 0,20 prósentustig.
Þú gætir einnig haft áhuga á
12. apríl 2024
Líkt og fram kemur í greinargerð bankaráðs Landsbankans til Bankasýslu ríkisins frá 22. mars sl. þá átti bankaráð, frá miðju ári 2023, frumkvæði að því að upplýsa Bankasýsluna um áhuga bankans á að kaupa TM. Þann 20. desember 2023, sama dag og bankinn gerði óskuldbindandi tilboð í félagið, var Bankasýslan upplýst í símtali um að bankinn væri þátttakandi í söluferli TM. Bankasýslan setti aldrei fram athugasemdir eða óskaði eftir frekari upplýsingum eða gögnum fyrr en eftir að tilboð bankans hafði verið samþykkt.
4. apríl 2024
Notkun reiðufjár fer minnkandi í Evrópu og sérstaklega á Norðurlöndunum. Aukin notkun á stafrænni tækni í verslun og viðskiptum og heimsfaraldur hafa flýtt þeirri þróun. Varnir gegn peningaþvætti hafa einnig sett gjaldeyrisviðskiptum með reiðufé verulegar skorður og hafa lög og reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti verið hertar, sérstaklega á Norðurlöndunum.
27. mars 2024
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 2. apríl nk.
25. mars 2024
Landsbréf hf., dótturfélag Landsbankans, hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2023.
15. mars 2024
Landsbankinn lækkar vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum með fasta vexti.
15. mars 2024
Vegna kerfisuppfærslu verður tiltekin þjónusta bankans ekki aðgengileg aðfaranótt sunnudagsins 17. mars. Gert er ráð fyrir að þjónustan verði skert frá miðnætti laugardagskvöldið 16. mars til kl. 7.00 á sunnudagsmorgun.
11. mars 2024
Landsbankaappið hefur verið tilnefnt sem app ársins 2023 á Íslensku vefverðlaununum sem verða afhent 15. mars næstkomandi.
7. mars 2024
Núna getur þú endurfjármagnað íbúðalánið þitt með enn einfaldari hætti á vefnum eða í Landsbankaappinu. Endurfjármögnun íbúðalána hefur aldrei verið þægilegri eða fljótlegri.
4. mars 2024
Frábær mæting var á annað Fjármálamót Landsbankans á pólsku í síðustu viku. Fjármálamót er heitið á fræðslufundaröð Landsbankans og var fundurinn haldinn í Reykjanesbæ að þessu sinni, í samstarfi við Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis.
1. mars 2024
Landsbankinn mun hætta kaupum og sölu á reiðufé í þremur Norðurlandagjaldmiðlum á næstunni. Um er að ræða norskar, sænskar og danskar krónur.