Fréttir

Nýtt skrif­stofu­hót­el og fjar­vinnu­ver í Þor­láks­höfn

Sveitarfélagið Ölfus, Landsbankinn og Þekkingarsetrið Ölfus Cluster vinna sameiginlega að því að koma upp skrifstofuhóteli og fjarvinnuveri.
23. ágúst 2021 - Landsbankinn

Sveitarfélagið Ölfus, Landsbankinn og Þekkingarsetrið Ölfus Cluster hafa komist að samkomulagi um opnun skrifstofuhótels og vinnustofu með áherslu á fjarvinnu í Þorlákshöfn. Stefnt er að því að opna fjarvinnuverið 1. nóvember nk. í Hafnarbergi 1 þar sem útibú bankans er nú til húsa en útibúið færir sig um set í sama húsi.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri

„Við hjá Sveitarfélaginu Ölfusi höfum um langt skeið átt afar farsælt samstarf við Landsbankann og erum því fyrst og fremst ánægð með að frábær þjónusta bankans hér í Þorlákshöfn verður tryggð. Fólksfjölgun hér er hröð og því afar mikilvægt fyrir okkur að tryggja aðgengi að þessari mikilvægu þjónustu. Bankaþjónusta um allan heim hefur verið að breytast og hjá okkur ríkir fullur skilningur á því að húsnæðisþörfin hefur líka breyst. Við erum líka þakklát fyrir að Landsbankinn sjái tækifæri í að halda hér áfram þjónustu og þá ekki síður fyrir að þau skuli sýna metnað til þess að þróa samfélagið hér með okkur með aðkomu að uppbyggingu Þekkingarsetursins Ölfus Cluster og tilkomu skrifstofuhótels og vinnustofu.“

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans

„Viðskiptavinir okkar kjósa í síauknum mæli að nota stafrænar lausnir til að sinna sínum bankaviðskiptum þegar þeim hentar. Hægt er að fá nánast alla almenna bankaþjónustu í netbankanum, Landsbankaappinu eða í hraðbönkum. Heimsóknum í útibú hefur þar af leiðandi snarfækkað og húsnæðisþörfin breyst. Það er ánægjulegt að koma að þessari uppbyggingu í Þorlákshöfn og sjá húsnæðið fá nýtt og spennandi hlutverk. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að einbeita okkar að því að gera líf viðskiptavina okkar einfaldara með aðgengilegri þjónustu og góðri ráðgjöf. Það er Landsbanki nýrra tíma.“

Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster

„Sveitarfélagið Ölfus og þá ekki síst Þorlákshöfn eru í mikilli og hraðri uppbyggingu. Fólki fjölgar hratt hér og þarfir samfélagsins breytast samhliða nýjum takti. Fjölmargir íbúar vinna störf sín í fjarvinnu og Covid-ástandið hefur flýtt þeirri þróun. Þörfin fyrir fjarvinnuaðstöðu hefur því vaxið hratt og við viljum mæta þeirri þörf með því að koma hér upp skrifstofuhóteli og vinnustofu. Við höfum líka fengið fjölda fyrirspurna frá fyrirtækjum sem hér eru eða eru að flytja hingað og vilja fá afnot af skrifstofuhúsnæði. Þetta stóra skref gerir okkur einnig mögulegt að mæta þeirri eftirspurn.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur