Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Erum við að missa fókus?

Það rignir yfir landann þessa dagana svikapóstum í nafni allra helstu aðila sem við þekkjum – frá viðskiptabönkum, Skattinum, island.is, póst- og flutningsfyrirtækjum og lögreglunni, svo nokkur dæmi séu tekin. Allir þessir póstar hafa þann eina tilgang að stela af okkur peningum með því að veiða upp úr okkur kortaupplýsingar eða brjótast inn í netbankann okkar. Það vekur sérstaka athygli núna hversu margir láta blekkjast og falla fyrir þessum vefveiðum.
Netsvik
19. júní 2026

Það er ekki óalgengt að slíkar svikabylgjur gangi yfir en það er samt áberandi meira um að fólk sé að falla í gildruna núna. Vissulega verða svikatilraunirnar sífellt fágaðri og gervigreindin gerir svikurunum hægara um vik að herma eftir íslenskunni, en það er vert að velta því fyrir sér hvort við séum að slaka á vörnunum á sama tíma og við byrjum að slaka á í sumarsólinni.

Hvað getum við gert til að varast?

Einföld regla er að smella aldrei á hlekki í SMS-um eða tölvupóstum heldur fara beint inn á vefsíðu eða app fyrirtækis og skrá sig þar inn með öruggum hætti. Ef, og þá segi ég EF, við ætlum að smella á hlekk yfir höfuð skiptir lykilmáli að skoða fyrst vel hver sendandinn er, sér í lagi símanúmer eða netfang sendanda.

Ef hlekkurinn inniheldur innskráningu með rafrænum skilríkjum eða að við gefum upp kortaupplýsingar skulum við strax stoppa og athuga hvað við erum að gera. Almennt séð senda alvöru fyrirtæki ekki slíka hlekki í tölvupósti eða SMS-i.

Mikilvægast af öllu því sem við gerum er að þegar við erum að samþykkja innskráningar með rafrænum skilríkjum eða samþykkja greiðslur með rafrænum skilríkjum, PIN-númeri, lífkenni eða öðrum persónubundnum öryggisþáttum, er að lesa vel skilaboðin sem birtast áður en við veitum samþykkið. Í textanum með auðkenningarbeiðninni kemur fram hvaða innskráningu við erum að samþykkja, nú eða hvaða greiðslu, og þá á að koma fram heiti söluaðila og fjárhæð greiðslunnar sem við erum að samþykkja.

Það eitt að gefa sér nokkrar sekúndur til að lesa þessar upplýsingar getur komið í veg fyrir að við verðum fyrir fjártjóni!

Öryggisstillingar korta

Önnur einföld og þægileg leið til að viðhalda sterkum vörnum er að breyta öryggisstillingum korta í takt við eigin þarfir. Í Landsbankaappinu er t.d. hægt að loka fyrir notkun á korti í netverslun, fyrir notkun erlendis og fyrir notkun í hraðbönkum. Það er líka hægt að setja upp vöktun á kortinu, t.d. þannig að við fáum SMS þegar úttekt er gerð án þess að kortið sé til staðar. Ef allt fer á versta veg er líka hægt að loka kortinu í appinu.

Ef þig grunar að þú hafir lent í klóm netglæpamanna hvetjum við þig til að hafa samband við þinn viðskiptabanka sem allra fyrst. Svikavakt Landsbankans er opin frá kl. 9 til 23 alla daga.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netöryggi
25. nóv. 2025
14 góð ráð til að auka öryggi í netverslun
Verslun á netinu er ekki hættulaus og tölvuþrjótar leggja mikið á sig til að stela greiðsluupplýsingum eða svíkja fé út úr fólki með öðrum hætti. En það er hægt að gera nokkrar einfaldar ráðstafanir til að minnka hættuna á netsvikum. Við tókum saman nokkur ráð sem gott er að hafa í huga.
14. okt. 2025
Ert þú með skotskífu á bakinu?
Við veltum því reglulega fyrir okkur hvernig við getum hjálpað fólki að bera kennsl á og þar með varast netsvik. Daglega gengur fólk eins og við í gildruna, allskonar fólk á öllum stigum lífsins. Fólk eins og ég og þú, fólk sem veit betur. Hvað veldur?
27. maí 2025
Fimm svikasögur úr raunveruleikanum
Aldrei hafa eins margar tilkynningar um tilraunir til netsvika borist okkur í Landsbankanum eins og á þessu ári. Það sem af er ári höfum við fengið fleiri tilkynningar um netsvik en allt árið í fyrra – sem þó var metár. Sem betur fer hefur tjón vegna netsvika ekki aukist í samræmi við fjölgun mála. Engu að síður hafa margir tapað háum fjárhæðum og í sumum tilvikum stórum hluta af ævisparnaðinum.
2. apríl 2025
Setjum okkar eigin leikreglur í netheimum
Það berast reglulega fréttir af fólki sem tapar peningum eftir að hafa fallið fyrir netsvikum. Þetta vandamál er alls ekki bundið við Ísland, heldur eru netsvikin hluti af starfsemi alþjóðlegra glæpahringja sem svífast einskis til að svíkja peninga af fólki.
20. des. 2024
Símtalasvikin halda áfram – ekki falla í gildruna
Síðustu vikur og mánuði hefur verið mikið um að fólk falli fyrir símtalasvikum sem oftast snúast um rafmyntir sem ýmist eru boðnar til sölu eða fólki er talin trú um að það eigi rafmyntir inni á reikningi. Fjárhagslegt tjón í þessum svikum hefur verið mikið og eftir sitja einstaklingar í sárum.
2. des. 2024
Lengdin skiptir máli – sterkustu lykilorðin
Hvað eru bestu og sterkustu lykilorðin? Best og sterkast er ekki alveg það sama, því góð lykilorð þurfa bæði að vera eftirminnileg OG sterk vörn gegn netárásum. Svarið gæti því komið þér á óvart!
Netöryggi
30. okt. 2023
Góð ráð um varnir gegn netsvikum
Netsvik hafa aukist verulega. Við höfum tekið saman aðgengilegar upplýsingar um hvernig hægt er að þekkja netsvik og verjast þeim.
31. ágúst 2023
Ef þú lest ekki skilaboðin getur þú tapað miklum peningum!
Ertu örugglega að nota rafrænu skilríkin til að staðfesta eitthvað sem þú vilt í raun og veru gera? Eða eru svikarar kannski að plata þig til að nota rafrænu skilríkin til að hleypa sér inn í bankaappið þitt?
Netöryggi
3. ágúst 2023
Yngri hópur fellur fyrir netsvikum – erum við nógu varkár?
Netsvikum og tilraunum til netsvika hefur fjölgað mikið í sumar. Ekki aðeins eru málin fleiri heldur eru fórnarlömbin líka yngri en áður. Möguleg skýring á aukningunni er sú að nú er meira um að svikin séu reynd utan opnunartíma fyrirtækja, þ.e. um kvöld og um helgar og þegar líklegt er að fólk sé í sumarfríi og því síður á varðbergi.
Öryggi í netverslun
28. júlí 2023
Hvernig á að bregðast við svikum?
Ef þig grunar að þú hafir lent í klóm svikara, sérð óeðlilegar færslur á reikningum eða greiðslukortum eða óviðkomandi hefur komist inn í netbankann þinn, er mikilvægt að hafa samband við bankann eins fljótt og hægt er.