Vikubyrjun 9. apríl 2018
Nýlega tilkynntu Bandaríkjamenn að þeir hygðust leggja verndartolla á stál og álafurðir frá Kína. Kínverjar brugðust við með því að tilkynna um fyrirhugaða tolla á vörur frá Bandaríkjunum að andvirði 50 ma. dollara. Bandaríkjastjórn áformar að leggja frekari tolla á af vörum frá Kína andvirði 100 ma. dollara á móti. Þessi þróun ber þess skýr merki að viðskiptastríð sé í uppsiglingu milli ríkjanna tveggja.
9. apríl 2018
Vikan framundan
- Í vikunni fara fram aprílverðmælingar fyrir vísitölu neysluverðs. Gera má ráð fyrir að flestir greinendur birti spár í lok vikunnar.
- Eftir lokun markaða í dag birta Lánamál ríkisins mánaðarlegt markaðsupplýsingarit sitt.
- Á fimmtudag birtir Seðlabankinn fyrri fjármálastöðugleikaskýrslu ársins.
- Á föstudag birtir Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi.
Mynd vikunnar
Nýlega tilkynntu Bandaríkjamenn að þeir hygðust leggja verndartolla á stál og álafurðir frá Kína. Kínverjar brugðust við með því að tilkynna um fyrirhugaða tolla á vörur frá Bandaríkjunum að andvirði 50 ma. dollara. Bandaríkjastjórn áformar að leggja frekari tolla á af vörum frá Kína andvirði 100 ma. dollara á móti. Í ljósi þess hversu lítið Kínverjar flytja inn af vörum frá Bandaríkjunum er óljóst hvert næsta svar Kína veður.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið birti fjármálaáætlun fyrir árin 2019-2023.
- Seðlabankinn birti ársskýrslu fyrir 2017.
- Seðlabankinn birti tölur um millibankamarkað með krónur og með gjaldeyri í mars.
- Seðlabankinn birti einnig útreikning á raungengi miðað við verðlag í mars.
- Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2017 var 62,5 ma.kr.
- Vöruviðskipti við útlönd voru óhagstæð um 8,2 ma.kr. í mars.
- Landsbankinn og Íslandsbanki héldu víxlaútboð. Arion banki hélt útboð á sértryggðum skuldabréfum. Lánamál ríkisins héldu skiptiútboð.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

15. okt. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.

12. okt. 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.

7. okt. 2026
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma. Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.

5. okt. 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum.

1. okt. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. sept. 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.

29. sept. 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.

28. sept. 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.

21. sept. 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.

21. sept. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð.